Úrval - 01.08.1967, Side 106

Úrval - 01.08.1967, Side 106
104 ÚRVAL fagnaðarerindisins. Þá munum við verða færari um að skilja okk- ar aðskildu bræður, og þeir munu skilja okkur.“ Þing Jóhannesar páfa var því á ýmsan hátt öðruvísi en áður hafði þekkzt. Þingið, sem kom saman í Trent á 16. öld, einkenndist af til- raun til þess að styrkja aðstöðu kaþólsku kirkjunnar og sameina krafta hennar eftir högg það, sem henni hafði verið greitt af siða- bótastefnu mótmælenda. Fyrsta Vatíkanþingið, sem kom saman ár- ið 1870, hafði verið tilraun til þess að styrkja vald og áhrif kaþólsku kirkjunnar, svo að hún fengi betur staðizt árásir frjálslyndisstefnunnar. En 2. Vatíkanþingið, þing Jóhann- esar páfa, einkenndist af viðhorfi kirkjunnar til umheimsins Þar reyndu kirkjunnar menn; að gera sér grein fyrir stöðu kaþólsku kirkj- unnar í heiminum, skiptum henn- ar við aðra kristna menn og einn- ig við trúarbrögð þau, er stóðu ut- an allrar kristni, trúfrelsi og hlut- verki kaþólsku kirkjunnar í ver- öldinni. Þetta var geysilega um- fangsmikið verkefni. Þeir 2500 biskupar, er þingið sóttu, fórnuðu 3 mánuðum til þingstarfanna á ári hverju í samfleytt fjögur ár. Jó- hannes páfi lifði það ekki að sjá hið fjögurra ára þing ljúka störfum. En grundvöllurinn hafði þegar verið lagður að margs konar endurbótum, áður en hann andaðist. En Vatíkanþingið er ekki eini minnisvarðinn um líf og starf Jó- hannesar páfa. Hann lét frá sér fara samtals 8 þýðingarmikil páfabréf. í tveim hinum yfirgripsmestu, „Mater et Magistra“ árið 1961 og „Pacem in Terris“ (Frið á jörðu) árið 1963, lýsti hann þeim megin- reglum, sem hann byggði líf sitt á, og veitti öðrum ýmsar leiðbeining- ar og gaf ýmis fyrirmæli. I fyrra bréfinu færði hann þjóðfélagslegar kenningar kaþólsku kirkjunnar í nú- tímabúning og samræmdi þær bet- ur nútímalífi. Þar varði hann bæði rétt mannsins til persónulegra eigna og einnig lögfnæti „þjóðnýtingar“ til almenningsheilla. Hið síðarnefnda var fyrsta páfa- bréfið. sem var ekki aðeins stílað til biskupanna og hinna tryggu áhangenda kaþólskrar kirkju, held- ur „til allra velviljaðra manna“. Þetta páfabréf hafði stórkostleg áhrif um víða veröld, því að' í því skýrði Jóhannes páfi mönnum frá því, að „ekki megi rugla yfirsjón- um og villum saman við yfirsjónir og villur einstakra persóna". Og jafnframt benti hann á, að villu- kenningum (og má þar skilja, að átt er við marxismann) megi ekki rugla saman við ósvikna sögulega hreyf- ingu sem kommúnismann, er kynni að hafa eitthvað gott að geyma, og álíta, að þar sé um eitt og hið sama að ræða. Hann hvatti til samvinnu milli allra þjóða og nefndi þar al- veg sérstaklega kommúnistaríkin. Hann veitti dóttur Nikita Khrush- chev áheyrn ásamt Adzhubei manni hennar, ritstjóra hins áhrifamikla rússneska dagblaðs „Izvestia“. Og honum tókst að brjóta skörð í hinn risavaxna múr, sem mennirnir höfðu reist milli þess ríkis veraldar, er var annað í röðinni, hvað völd og áhrif snerti, og áhrifamestu trúar-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.