Úrval - 01.10.1969, Side 54

Úrval - 01.10.1969, Side 54
52 Hvað er Rósarkrossmaður? ósarkrossmaður er nem. andi. Hann hefur djúp- stæða þrá til að helga sig alvarlegu námi. Ekki námi, sem felst í því að lesa ritgerðir, bækur, blöð o.s.frv., heldur að rannsaka bækur, menn og þó umfram allt rannsakar hann sjálfan sig. Hann lætur sér ekki nægja að vera meðlimur í fé- lagi, heldur hefur hann fullan hug á að athuga gaumgæfilega alla þá hluti, sem stuðla að þjálfun hans. Sem lærisveinn leitar hann vizku með öflun þekkingar og vinnu. Hver hréyfing og hugsun er árangur náms hans. Hann lætur sér ekki nægja lauslega og kæruleysislega kynningu hlutanna. Hann er því að- eins ánægður, að hann hafi unnið sig fram til fulls skilnings. Hann er vakandi spurningar- merki, sem stöðugt leitar fullnaðar- upplýsinga um alla hluti og lætur sér ekki nægja yfirborðsþekkingu, né tekur hann staðreyndir trúanleg- ar íhugunarlaust. Hann les og íhug- ar það, sem hann les, áður en hann kemst að niðurstöðu eða tekur af- stöðu til málefnisins. Sir Francis Bacon hefur komizt þannig að orði: „Lesið ekki til þess að andmæla eða afsanna, — né til þess að trúa eða taka trúanlegt, — eða til að finna efni í samræður, — heldur til þess að yfirvega og íhuga.“ Löngun Rósarkrossmannsins í þekkingu auðgar sérhvern dag og færir honum æ dýpri fullnægju. Samt sem áður er hann mjög vand- ur í vali á efni og hleður ekki upp í huga sér gagnslausum hugsunum. Þekking sú, er hann hefur tileinkað sér, er byggð á lögmálum, sem dul- spekingar hafa prófað og sannreynt gegnum aldirnar. Rósarkrossþekkingin fjallar um hin raunhæfu vandamál hins dag- lega lífs og um guðleg og náttúru- leg lögmál. Nemandinn gerir sér undir eins grein fyrir því, að sér- hvert lögmál er guðlegt, þar sem allt á uppruna sinn í hinu „kos- miska“. Hann er sér meðvitandi um — Gangleri — Páll Gröndal þýddi — 53 Hann er vakandi spumingarmerki, sem lætur sér ekki nægja yfirborðsþekkingu, né tekur staðreyndir trúanlegar ílmgunarlaust. allsherjar handleiðslu og stjórn á sérhverju lögmáli, er ríkir í alheim- inum. Með því að beita á raunveru- legan hátt vísindum og list Rósar- krossþekkingarinnar auðgar hann líf sitt og gerir það fyllra. í þessari þekkingu hefur honum opnazt leið til að breyta heimspeki í nothæf vísindi, breyta trú í verknað og að lifa lífi, sem fleytir honum hraðbyri til fullkomnunar. Lífsreglur Rósarkrossreglunnar vara hann hinsvegar við: „Hældu þér ekki af þeim árangri, er þú hefur náð, né gerðu mikið úr Rósarkross- þekkingu þinni. Þú ert að vísu Rós- arkrossmaður sem meðlimur bræðralagsins. En sem Rósarkross- maður að þekkingu og mætti er hinn hæsti og mesti á meðal vor eins og barn á sínum fyrstu náms- árum og óverðugur viðurkenningar. Þér skuluð ekki telja yður meistara, heldur Rósarkrossnemendur, ávallt nemendur, já nemendur að eilífu.“ Rósarkrossnemandinn er sann- leiksleitandi. Hann hefur komizt í snertingu við hugsanir, heimspeki og uppgötvanir mestu hugsuða heimsins. Námið verður honum að vana og leitin að sannleikanum verður honum „ritual“. Hann lætur hvorki tímaleysi, ó- næði eða félagslegar truflanir standa í vegi fyrir sér, eða fréista sín til þess að sleppa hinum reglu- lega námstíma eða til þess að nota ekki eitthvert þeirra lögmálá, sem honum hafa verið kennd. Hann hef- ur einsett sér að gefa sig að því, sem hann langar mest að gera, þrátt fyrir óhagstæðar kringumstæður. Hann gerir sér grein fyrir því, að þessar óhagstæðu kringumstæður eru próf á hæfni hans, einlægni og viljastyrk, og hann bíður ekki hag- stæðs tækifæris, heldur klífur bratt- ann ótrauður, vitandi að það, sem hann gerir í dag, þau lögmál, sem hann ígrundar og fær til að vinna, munu á morgun skapa aðstæður, sem geta orðið hagstæðar. Með því að framkvæma hlutina þrátt fyrir núverandi aðstæður yfirvinnur hann þær og nær ef til vill að breyta þeim til hins æskilega.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.