Úrval - 01.05.1970, Síða 3
Fálát og dul er úthafsaldan há.
Eru þó geymdar djúpt í svölu veri
sagnir um vængsmá hjón og
fjaðrafá,
sem forðum daga byggðu í
Geirfuglsskeri.
ÞANNIG HEFST KVÆÐI eftir Ein-
ar Braga um síðasta Geirfuglinn,
sem drepinn var í Eldey 3. júní
1844. Þar með var heil fuglategund
útdauð á jörðinni. Síðustu geir-
fuglahjónin komust til Eldeyjar eft-
ir langa og erfiða ferð og miklar
hrákningar. Þetta var forustufuglinn
og maki hans og þessir tígulegu
fuglar óðu ótrauðir i land — hinir
síðustu sinnar tegundar. Og skömmu
síðar verpti kvenfuglinn þar eggi
— einu voninni um að viðhalda
mætti tegundinni. En rammbyggt
þrímastra skip varpaði ákkerum á
úfnum haffletinum skammt frá Eld-
ey; bátur sigldi litlu síðar í land, og
voru á honum sex karlmenn og þrír
drengir. Mennirnir þrömmuðu með
axlaðar kylfur að sjófuglahópnum,
sem verpti í eynni. Fuglarnir voru
hrœddir, en yfirgáfu þó ekki egg
sín, þegar mennirnir nálguðust. Þeir
réðust inn í mitt fuglagerið og hófu
kylfurnar hátt á loft og létu síðan
hendur standa fram úr ermum
nokkra hríð. Skyndilega tók einn
mannanna sér hvíld, þurrkaði svit-
ann af enninu og leit upp til klett-
anna. Hátt yfir höfði sér kom hann
auga á tvo stóra og stæðilega geir-
fugla. „Geirfuglar“ æpti hann upp
yfir sig. Mennirnir brugðu skjótt
við og hófu kylfurnar hátt á loft.
Þegar þeir voru í um tuttugu metra
fjarlœgð, gargaði karlfuglinn og
fuglarnir tveir tóku á rás eins hratt
og þeir gátu. En þeir voru á landi
og állar hreyfingar þeirra því hæg-
ar og klunnalegar. Kylfurnar féllu,
og einn mannanna, sem var staðráð-
inn x að láta fuglana ekki sleppa,
steig á stóra eggið og braut það mél-
inu smærra. Hann hafði ekki hug-
mynd um, að hann hafði gert fugla-
tegund aldauða.
FRÁ ÞESSUM ATBURÐI og löng-
um aðdraganda hans segir í athygl-
isverðustu grein þessa heftis. Hún
heitir „Síðasti geirfuglinn“ og er
úrdráttur úr bók eftir Allan Echert.
Þessi grein segir frá örvœntingar-
L
500.00. í lausasölu krónur
Myndamót: Rafgraf h.f.
Kemur út mánaðarlega. Utgefandi: Hilmir hf.,
Skipholti 33, Reykjavik, pósthólf 533, sími 35320
Ritstjóri: Gylfi Gröndal. Afgreiðsla: Blaðadreif-
ing, Skipholtl 33, sími 36720. Verð árgangs krónuí
50.00 heftið. Prentun og bókband: Hilmir h.f.
V