Úrval - 01.05.1970, Síða 20
18
Frwnbyggjar Nýju-Gumeu eru
cnrt frumstœðustu og vanþróuðustu mann-
verur á þessari jörð.
A/leð
steinaldarmönnum í
Nýju-Guineu
ag einn í októbermán-
uði síðastliðnum flaug
ég ásamt nokkrum
myndatökumönnum
inn á hið líttkannaða
svæði við Nomadána á Nýju-Guin-
eu, risavöxnu eyjunni fyrir norðan
Ástralíu. Ég ætlaði að fara að taka
þar nýja kvikmynd fyrir sjónvarp.
Við vorum ekki fyrr búnir að lenda
á rennblautu grasbrautinni við lög-
regluvarðskýlið þarna við Nomad-
ána en við sáum langa röð nakinna
burðarmanna og innfæddra lög-
reglumanna koma þrammandi í
halarófu út úr frumskóginum um-
hverfis flugbrautina.
Fremstur í flokki gekk rengluleg-
ur, ungur lögregluforingi, Robin
Barcley að nafni. Hann var héraðs-
stjórnarfulltrúi og æðsti maður
þessarar afskekktu lögregluvarð-
stöðvar, en hún er ein rúmlega
hundrað slíkra stjórnarstöðva, sem
dreifðar eru víðs vegar um austur-
helming eyjarinnar, sem er kallað
„Svæðið Papua og Nýja-Guinea“ og
lýtur stjórn Ástralíu. Þessi austur-
helmingur þessarar risaeyjar' er
183.000 fermílur að stærð. „Mér
þykir leitt, að þið voruð á undan
okkur,“ sagði hann brosandi, er
hann nálgaðist okkur. „En við
þurftum að útkljá hversdagslegt mál
inni í frumskóginum."
Við fréttum það brátt, að „hvers-
dagslega málið“, sem þeir höfðu
þurft að útklj á, var ekki neitt hvers-
dagslegt mál í okkar augum. Þeir
höfðu orðið að ryðja sér braut inn
á afskekkt frumskógayfirráðasvæði
eins af frumstæðustu ættflokkum
Nýju-Guineu. Þar er um mjög her-
skáa menn að ræða. Menn af þess-
um ættflokki höfðu ráðizt á nálæg-
an ættflokk og myrt þar konu eina,
sem þeir ásökuðu um galdra. Og svo
gerðu þeir sér lítið fyrir og átu