Úrval - 01.05.1970, Síða 32
30
ÚRVAL
Eitt ár
í iífi
búrhvalsins
EFTIR
VICTOR B. SCHEFFER
Hvemig lifa hvaUrnir?
Hér er lýst einu ári
í lífi biírhvelskálfs á
skemmtilegan hátt.
Victor B. Scheffer er kunnur banda-
rískur Jíffræðinigur og sér.fræðingur í
lifnaðarháttum sjávardýra. Þessi
grein er samandregið efni bókar, sem
hann hefur nýlega gefið út.
itli búrhvelskálfurinn
lítur fyrst birtuna í
byrjun september. ÞaS
er blágræn birta, sem
dansar og titrar.
Sporðurinn kemur á undan, þegar
hann fæðist, líkt og siður er meðal
allra hvala. Hann rennur auðveld-
lega út úr líkama móður sinnar ein-
hvers staðar undir yfirborði Kyrra-
hafsins um 200 mílur fyrir vestan
Kyrrahafsströnd Mexíkó. „Litli
kálfur“ skelfur í fyrstu. Vatnið er
kalt, og hann hefur legið í 16 mán-
uði í hlýjum líkama móður sinnar.
Hann tekur andköf og reynir að ná
til sín lofti. Móðir hans ýtir honum
kvíðin upp að yfirborðinu. Þar and-
ar hann ótt og títt, líkt og örvænt-
ingarfullt, og reynir að ná sem
mestu lofti niður í sig. Hann blæs
upp litlu gufuskýi við hvern and-
ardrátt. Hann er aðeins nokkurra
mínútna gamall, en hann er samt
furðu langur, eða 14 fet á lengd, og
vegur hvorki meira né minna en
um 1 tonn.
Naflastrengurinn, sem er 5 fet á
lengd, slitnar, þegar móðir og af-
kvæmi velta sér þarna í bylgjun-
um. Litli kálfur opnar bleikan,
tannlausan munn og leitar að spen-
um móður sinnar. Þeir eru faldir í
tveimur djúpum fellingum sitt
hvorum megin á kvið hennar, langt
fyrir aftan naflann. Loks finnur
hann spena. Hann kemur munni sín-
um í réttar stellingar og þrýstir
fast á spenann. Móðir hans ýtir
spenanum út og spýtir stórri gusu
af næringarríkri mjólk alveg aftur
í kok hans. Þriðjungur mjólkurinn-
ar er hrein fita.