Úrval - 01.05.1970, Page 43
JOAN SUTHERLAND
41
Á sviði Metropolitan-óperunnar í New York. Joan Sutherland ásamt John
Alexander í óperunni Lucia di Lammermoor eftir Donizetti.
var tími mikilla áhyggju fyrir söng-
konuna og þá, sem næst henni
stóðu í lífi og starfi. En þegar Joan
var að basla við að syngja einn dag-
inn að venju, birtist gamli, glæsti
söngtónninn aftur, eins leikandi
léttur og fagur og áður.
Nú hófst sigurganga hennar milli
helztu óperuhúsa heims. ítalir, hin-
ir miklu óperuunnendur, kölluðu
hana „la stupenda", hina stórfurðu-
legu. Áheyrendur risu úr sætum
sínum, klöppuðu ofsalega og hróp-
uðu húrrahróp í Metropolitanóper-
unni í New York. Þar hafði varla
sézt né heyrzt annað eins áður. Hún
fór úr einni borginni í aðra, „hún
kom, hún söng, hún sigraði,“ eins
og einn gagnrýnandinn komst að
orði.
En óheppnin elti hana líka á
röndum á öðru sviði. Hún var í
þann veginn að leggja upp í söng-
ferðalag til fósturjarðar sinnar,
Ástralíu, þegar það losnaði brjósk-
flaga í baki hennar. Sérhver hreyf-
ing varð henni nú sár kvöl. Hún
lét reyra sig í stálsjúkrabelti og
söng þannig einu sinni. En þetta
var henni um megn. Hún neyddist
að lokum til þess að aflýsa söng-
ferðalagi sínu í Ástralíu.
NÝR SIGUR - „SÖNGSTJARNA
SEZT f HELGAN STEIN“
Þannig hljóðuðu blaðafyrirsagn-