Úrval - 01.05.1970, Síða 64
62
fíerð hefur verið ácetlun,
sem miðar að því
að leysa mjólkurvandamálið
í Indlandi, og eru miklar
voriir bundnar við hana.
Reynt að
draga úr
eggjahvítu-
efnaskorti
]jUtflflflíiljjj? lþjnflamat-'fnplaáaptlllnin
0j||| (WFP) hefur lagt fram
S 56 milljónir dollara
■|g (4928 milljónir ísl. kr.)
JlMlílílílíle tii að standa straum af
byggingarkostnaði mjólkurbúa í
Indlandi — og er það stærsta verk-
efni í sjö ára sögu WFP.
Þetta er eitt af 18 verkefnum í 10
löndum, sem miða að matvælahjálp
og kosta samtals 123 milljónir doll-
ara, en þau voru samþykkt á stjórn-
arfundi WFP í Róm á liðnu hausti.
Þrjú önnur verkefni í Indlandi taka
til vegabóta, landgræðslu í Mysore-
fylki og þróunar skógræktar í Ma-
harasntrafylki
Indverski landbúnaðarráðherrann
, / • !
B. R. Patel, sem sat stjórnarfundinn
í Róm, lét svo ummælt, að áætlun-
in um byggingu mjólkurbúa í Ind-
landi væri stórt skref í framfaraátt,
einkanlega með tilliti til þess að
brýna nauðsyn bæri til að brúa
„eggjahvítuefnabilið“ í Indlandi,
sem einungis framleiðir 140 grömm
af mjólk á hvert mannsbarn dag-
lega, en lágmarksþörfin er um 280
grömm á mann daglega.
Samkvæmt áætluninni á Alþjóða-
matvælaáætlunin að afhenda á
fimm ára tímabili 126.000 lestir af
mjólkurdufti og 42.000 lestir aí
smjörolíu, en úr þessu magni á að
framleiða milljónir lítra af flösku-
mjólk. Mjólkina á að selja í stór-
borgunum fjórum, Bombay, Delhi,
Kalkútta og Madras.
Indverski hluti áætlunarinnar er
fólginn í þróun mjólkurbúanna og
dreifingu afurðanna. Mjólkurkýr
verða fluttar frá stórborgunum
fjórum til nærliggjandi svæða,
komið verður upp móttöku- og
dreifingarmiðstöðvum úti á lands-
byggðinni og beitilönd endurbætt.
Patel landbúnaðarráðherra lagði
áherzlu á, að einn kostur hinnar
nýju áætlunar væri sá, að með
henni mætti koma í veg fyrir árlega
slátrun 100.000 mjólkurkúa, sem eru
á fóðrum í borgunum, en þar hefur
fóður reynzt alltof dýrt á þurrka-
skeiðum.
Áætlunin verður í umsjá ríkis-
valdsins. Mjólkurduftið verður selt
til mjólkurbúanna, og er búizt við
að tekjur af því nemi 127 milljón-
um dollara, sem ætlunin er að verja
til að bæta og þróa alidýrabúskap í
Indlandi.