Úrval - 01.05.1970, Blaðsíða 65
63
Fakírinn gat látið sár gróa á hálsinum
á sér, þannig að tíu mínútum eftir að
honum var veitt það, var sárið horfið
og ekki einu sbini ör sjáanlegt.
EFTIR
SUBHASH KIRPEKAR
Yoga og vísindi
Á
gjPMjg rið 1837 skráði Englend-
ingurinn Sir Claude
Wodo eftirfarandi at-
_____ burð og lýsti honum
SílílílílMU^ gaumgæfilega. Hann
dvaldi þá í Indlandi í höll Ranjit
Singh fursta.
Fakír nokkur hafði fallizt á að
láta grafa sig lifandi að viðstöddum
Ranjit fursta, sem hugðist láta gæta
hans mjög vel, meðan hann lægi í
gröfinni. Fakírnum var nú komið
fyrir í lítilli grafhvelfingu nálægt
höll furstans. Því næst var múr-
steinum hlaðið utan um grafhýsið,
dyrnar rækilega byrgðar og síðan
innsiglaðar. Fjórir varðmenn, sem
skipt var um á tveggja stunda fresti
stóðu við hverja hlið grafhýsisins og
gættu þess.
Þegar fakírinn hafði legið sex vik-
ur í gröf sinni, var innsiglið rofið.
Þar lá yoginn í trékistu í tæplega
meters djúpri gröf. Kistunni hafði
verið lokað vandlega, auk þess sem
hún var innsigluð.
Fakírnum, sem lá innan í þykkum
poka er rækilega var bundið fyrir,
var nú lyft upp úr kistunni. Pokinn
var síðan opnaður og maðurinn tek-
inn út.
Limir fakírsins voru nú þvegnir
upp úr heitu vatni og nuddaðir til
að fá aftur fram líf í þá, og heit
hveitikaka var sett öðru hvoru á
höfuð honum. Vax og baðmull, sem
vit hans höfðu verið fyllt með, voru
nú fjarlægð. og hníf var stungið á
milli koksins og tungunnar, sem
lokað hafði algjörlega fyrir allt loft-
streymi til lungnanna. Erfiðlega
gekk þó að ná tungunni upp úr
hálsinum. Það tókst ekki fyllilega
fyrr en eftir nokkrar tilraunir.
En skyndilega fór titringur um
líkama yogans. Nasirnar þöndust út
og' augun náðu aftur sínum fyrra
litarhætti. Að lokum andaði hann
— Gangleri —