Úrval - 01.05.1970, Side 66
64
nokkrum sinnum djúpt og leít til
Ranjit Singh og sagði ,-Trúirðu mér
núna?“
Þessi frásögn er sennilega sú
fyrsta, sem til er á enskri tungu um
„kraftaverk“ framkvæmt af fakír.
Árið 1928 kom fakír nokkur til
London, þar sem hann sýndi listir
sínar. Hann lét sig til dæmis falla í
djúpt dá, og hægði og flýtti hjart-
slættinum á víxl, þannig að stund-
um sló hjartað 20 slög á mínútu, en
svo skömmu seinna 120 slög. Þá gat
hann hert húðina svo að hún varð
ónæm fyrir hnífsstungum. Einnig
gat hann látið sár gróa á hálsinum
á sér, þannig að tíu mínútum eftir
að honum var veitt það, var sárið
horfið og ekki einu sinni ör sjáan-
legt. Að síðustu lét hann grafa sig í
sand í fimmtán mínútur, og þegar
hann var grafinn upp sagði hann
fyrir um, hvaða hestur mundi vinna
Derby veðreiðarnar. Spádómurinn
reyndist réttur.
Engir þeirra, sem nú iðka Hatha
Yoga hafa getað framkvæmt eins
ótrúleg fyrirbæri og þessir gömlu
fyrirrennarar í Hatha Yoga. En hins
vegar hefur verið sýnt rækilega
fram á lækningamátt yoga og þá
miklu sjálfsstjórn, sem fæst með því
að æfa það. Fyrir nokkrum árum
sannfærði Swami Dhirendra Brah-
machari lækna í indverska lækna-
félaginu um það, að asönurnar, eða
yoga stellingarnar sem hann kenndi,
gætu læknað sykursýki. Þegar 35
sykursýkissjúklingar höfðu æft
stellingarnar (asönurnar) í 40 daga
lýstu læknarnir því yfir að 23 hefðu
náð fullum bata. Þá fullyrðir þessi
sami yogi, að hann geti einnig lækn-
TJRVAL
að með æfingum sínum asma, gyllin-
æð og fleiri sjúkdóma.
íbúar Vesturlanda fengu fyrst
áhuga á yoga fyrir nokkrum ára-
tugum, en síðustu 20 árin hefur
áhugi á því aukizt gífurlega. Meðal
áhugamanna um yoga er margt
frægt fólk, eins og til dæmis fiðlu-
leikarinn heimsfrægi Yehudi Menu-
hin. Þá hefur systir leikkonunnar
Miu Farrow stofnað Yoga asram í
Bandaríkjunum, þar sem unnendur
yoga geta komið og dvalið um hríð
og iðkað æfingar sínar. Og á síðasta
ári sýndi meira að segja kona
finnska sendiherrans í Nýju Delhi
nokkrar stellingar (asönur) af mik-
illi leikni í samkomuhúsi einu þar
í borg. Frúin er 60 ára gömul.
Þá hefur yogað jafnvel brotið sér
leið í gegnum „járntjaldið“. Vetur-
inn 1960 vakti yogi nokkur mikla
athygli í Moskvu, þegar hann gekk
því sem næst allsber um götur borg-
arinnar í miklu frosti. Þetta athæfi
féll greinilega ekki í góðan jarðveg
hjá valdamönnum borgarinnar, því
að skömmu síðar var yoga fordæmt
í riti einu sem fjallar um heilbrigð-
ismál og sagt heilsuspillandi. Þessi
yfirlýsing kom samt ekki í veg fyrir
að „hetja sósíalismans", yfirvélstjór-
inn á kjarnorkuísbrjótnum Lenin,
upplýsti nokkru síðar að hann væri
mikill aðdáandi yoga. Og nú sýna
rússneskir læknar mikinn áhuga á
lækningamætti yogaæfinga, þegar
þeir heimsækja Indland.
En því er hins vegar ekki að
neita að margir svikarar og bragða-
refir segjast vera Hatha Yogar, eins
og til að mynd.a Strikanta Raó, sem
tyggur og gleypir glerbrot og drekk-