Úrval - 01.05.1970, Page 68
66
ÚRVAL
um tilraunum og niðurstöðum
þeirra.
Fjöldi áhorfenda var staddur í
stórum sal, þar sem þeir gátu heyrt
hjartslátt yoga. nokkurs í gegnum
hátalara. En skyndilega stöðvaðist
hjartslátturinn og áheyrendur
heyrðu ekki neitt. Læknarnir, sem
þarna voru, fundu alls engan hjart-
slátt í líkama yogáns, þótt þeir
hlustuðu hann með hlustunarpípum.
Hjartað var hætt að slá, um það var
ekki að villast. Þegar sami yogi var
rannsakaður við indversku heil-
brigðismálastofnunina og læknarnir
gátu ekki lengur greint hjartaslögin
með hlustunarpípunum, tengdu þeir
yogann við hjartalínuritann. Hann
sýndi að hjartað hélt áfram að slá,
en slögin höfðu hins vegar breytzt
í titring. Dr. Chinna útskýrði þetta
á eftirfarandi hátt: Yoginn eykur
með viljaafli sínu þrýstinginn í
brjóstholinu, þannig að æðarnar,
sem flytja blóðið til hjartans, geta
ekki flutt það þegar þrýstingurinn
er orðinn svona mikill. Og þegar
lítið sem ekkert blóð kemst til hjart-
ans og það dælir engu frá sér, hætt-
ir hjartað að slá. Ekkert hljóð heyr-
ist því að hjartalokurnar hafa ekk-
ert að gera. En þetta ástand getur
aðeins varað í örfáar sekúndur, alls
ekki lengur.
Nokkrir aðrir yogar, sem sögðust
geta stjórnað bjartslættinum, hægðu
á honum þar til hann varð 30—35
slög á mínútu. Þá fullyrti yogi nokk-
ur að hann þyrði að láta grafa sig i
28 daga án þess að neyta matar eða
drykkjar. Hann var settur í sérstak-
an loftheldan málmkassa, þar sem
hann féll í dá. Hann var í kassanum
í 10 klukkustundir. Eitt mjög mik-
ilvægt atriði kom í ljós við tilraun-
ina sagði einn læknanna. Svo virt-
ist sem yoginn gæti dregið úr orku
og súrefnisþörf líkamans um helm-
ing miðað við venjulegan mann, er
nýtur fullkominnar hvíldar. Súr-
efnisnotkunin var svo lítil að hún
rétt nægði til að viðhalda mjög hæg-
um efnaskiptum og halda þannig
lífi í líkamanum. Sami yogi var
reyndur þrisvar sinnum og árangur-
inn varð alltaf sá sami.
Yogaiðkun hefst með einbeitingu.
Þar er huganum markvíst beint með
mætti viljans að ákveðnu viðfangs-
efni. Á þennan hátt virkjar yoginn
kraft hugans og safnar honum sam-
an líkt og stífla virkjar vatnsfall.
Með einbeitingunni getur yoginn
haft áhrif á starfsemi líffæranna.
Æðsta stig einbeitingarinnar er
kallað samadhi.
Yogar sem lengi hafa iðkað yfir-
skilvitlega hugleiðingu halda því
oft fram, að heilinn og líkaminn
verði ónæmir fyrir utanaðkomandi
áhrifum meðan þeir hugleiða.
„Þetta hefur verið staðfest," segir
dr. Chinna. Þessir yogar verða fyrir
engum truflandi áhrifum vegna
skyndilegra ljósgeisla, tóna, snert-
ingar eða titrings. í nokkrum tilfell-
um voru þeir jafnvel ónæmir fyrir
sársauka. Til dæmis voru hendur
yoga eins settar í vatn, sem var við
frostmark, í 20 mínútur. En hann
hafði þjálfað taugakerfi sitt þannig
að það tók ekkert tillit til utanað-
komandi óþæginda. Og það var jafn-
vel svo þjálfað að hjartalínuritinn
sýndi engan óeðlilegan hjartslátt
eða líkamsvarnir.