Úrval - 01.05.1970, Blaðsíða 86
84
ÚRVAL
Héraðsdóm-
urinn í Sles-
vig — Hol-
stein, fékk
einhverju
sinni mál Sí-
gauna nokk-
urs til með-
ferðar. Hann
var ákærður fyrir slæman akstur og
stefnandi krafðist þess að hann yrði
ævilangt sviptur ökuréttindum.
Kröfu sína reisti hann á þeim rök-
um, að Sígauninn kynni hvorki að
lesa né skrifa. En dómararnir litu
öðru vísi á málið. Þeir sögðu:
„Sígaunarnir hafa eins og kunn-
ugt er sjötta skilningarvitið. Þess
vegna álítur rétturinn rangt að
svipta Sígaunann ökuleyfi, enda
þótt hann kunni ekki bókstafina,
því að hann getur haft vakandi auga
á öllu, sem fyrir ber í umferðinni
og oft og tíðum miklu betur en al-
mennt er.
Hjónin voru bæði talin vingjarn-
leg og gestrisin. Ög oft og tíðum
komu vinir og kunningjar óvænt í
heimsókn. En því var ekki að neita,
til voru þau kvöld og þeir dagar,
sem hjónin vildu vera ein. Þau voru
ekki lengi að komast að því, hvern-
ig bezt var að losna frá gestum. Ef
þau vilja komast hjá því að taka á
móti gestunum, fara þau einfald-
lega í utanyfirföt og þykjast vera að
fara út. En ef um skemmtilega gesti
er að ræða og þau eru komin í yfir-
hafnirnar, þá venda þau sínu kvæði
í kross og' segja við gestina: — Nei,
en hvað þetta er heppilegt, við vor-
um rétt í þessu að koma heim.
Þessi auglýsing var á Gallatin
veitingahúsinu í Kaliforníu: Ef þér
viljið njóta ánægjulegrar kvöld-
stundar á veitingahúsi, þá er Galla-
tin staðurinn. Liggur mjög mið-
svæðis, miðja vegu milli sjúkra-
hússins og fangelsisins.
Auglýsing í blaði í Róm: — Vildi
herramaður sá, sem kyssti mig og
bað mín á laugardagskvöldið á
spönsku tröppunum, gera svo vel að
hafa samband við mig strax. Ann-
ars neyðist ég til að giftast þeim,
sem ég er núna trúlofuð.
í flestum löndum eiga foreldrar í
erfiðleikum við að fá börn sín til
þess að þvo sér bak við eyrun og
yfirleitt fá þau til þess að þrífa sig.
En nú hefur sápuverksmiðja í París
sent á markaðinn sápu, sem á að
sigra krakkana. Sápa þessi er þann-
ig gerð, að inni í hverju stykki er
falið örlítið leikfang. En þá fyrst
er unnt að ná leikfanginu, þegar
búið er að nota alla sápuna. Nú
spyrja menn, hvort börnin muni
ekki nota tækifærið og gera ekkert
annað en þvo sér.