Úrval - 01.05.1970, Síða 88
86
ÚRVAL
Tíbet hafði verið til ölduvi saman sem dular-
fullt konungsríki leyndardómanna, falilð fyrir
forvitnum augum umheimsins að baki hæstu
fjalla veraldarinnar, sem konungsríki klaustra,
sönglandi munka og rólynds, alvarlega þenkj-
andi fólks, sem bar virðmgu fyrir liinu guð-
lega. Eftir hernám kínversku kommúnistanna
fyrir 20 árum, hafði Dalai Lama, hinn didar-
fulli stjómandi Tíbets, jafnvel hvatt þjóð
sína til þess að reyna að lifa í friði við hlið
innrásarseggjanna. En þó fór svo að lokum,
að ruddaskapur og grimmd Kínverjanna
gekk svo úr hófi, að þjóðvn gat ekki afbonð
slíkt lengur. Og árið 1959 sprakk allt í loft
upp, og þjóðin hóf uppreisn.
Rithöfundurinn og fréttaritarmn Noel Barber
ferðaðist rúmar 35.000 mílur í leit að efml í
þessa fyrstu tœmandi frásögn af hmni ör-
vœntingarfullu og vonlausu uppreisn Tíbet-
búa. Það tók hann tvö ár að fullgera bók
þessa, og á þebn■ tíma dvaldi hann meðal
tíbetskra flóttamanna í Indlandi. ELann átti
þar viðtöl við Dalai Lama og einnig við
ýmsa Tíbetbúa víðs vegar um heim. Árang-
urinn af öllu þessu undirbúningsstarfi er yfir-
gripsmikið sögulegt plagg, þar sem efni þessu
eru gerð full skil, enda kemur þar margt
fram í dagsljósið, sem hefur ekki verið um-
lieiminum kunnugt. Þar er einnig um að ræða
átakanlega frásögn af einum grhnmilegasta
harmleik vorra tíma.