Úrval - 01.05.1970, Blaðsíða 90
88
ÚRVAL
kynnzt ollum leyndardomum henn-
ar“. Þar var um að ræða dimma
ganga á 19 hæðum og bratta stiga,
sem lágu að þúsund herbergjum,
sem voru vistarverur presta, munka
og stjórnmálamanna. Þarna voru
bókasöfn troðfull af handskreyttum
bókum, og birgðageymslur, fullar
af matvælum og vopnum, dýrgrip-
um Dalai Lama og gullnum tignar-
merkjum hinna fornu konunga -Tí-
bets. Þetta var aðsetur hins æðsta
valds Tíbets, bæði andlegs og ver-
aldlegs. Þarna hafði Dalai Lama og
ríkisstjórn hans reynt af fremsta
megna að finna leiðir til friðsam-
legrar sambúðar við kínversku
kommúnistana, sem höfðu ráðizt
inn í land þeirra og gerzt þar hús-
bændur.
Morgun einn í miðjum febrúar-
mánuði árið 1959 var Dalai Lama
staddur í uppáhaldsherbergi sínu í
Potalahöllinni. Herbergi þetta var
um 25 ferfet að stærð, og voru
veggirnir þaktir sögulegum mál-
verkum, sem voru svo ýtarlega
unnin í hinum minnstu smáatrið-
um, að hver andlitsmynd var ekki
nema þumlungur á hæð. Það sneri
til suðurs (eins og öll þýðingarmikil
herbergi í Tíbet). Þaðan var gott
útsýni yfir Lhasadalinn. Um einni
mílu austar gat að líta höfuðborg-
ina Lhasa, og líktust húsin þar
einna helzt brúðuhúsum, séð ofan
frá þessari himingnæfandi höll.
Dalai Lama var þá 23 ára gam-
all. Hann var hár og grannur með
snoðklippt, hrafnsvart hár. Hann
gekk með gleraugu. vegna þess að
sjón hans hafði daprazt við margra
ára nám og lestur í illa upplýstum
herbergjum hallarinnar. Hann var
ekki aðeins mjög trúrækinn maður,
heldur einnig furðulega lærður og
fróður.
Nú var hann að búa sig undir
erfiðasta próf lífs síns, síðasta próf-
ið til doktorsgráðu í háspeki. Þetta
átti að verða munnlegt próf, og átti
hann að verða prófaður af mestu
fræðimönnum Tíbets í viðurvist
þúsunda áheyrenda. Prófið átti að
standa allan daginn og langt fram
á nótt og skyldi taka til ýmissa við-
fangsefna, svo sem „Fullkomnunar
vizkunnar" og „Klausturaga".
Kennarar hans beindu til hans
ótal spurningum til undirbúnings
þessu mikla prófi. Þegar hann var
spurður: „Hvert er þýðingarmest,
mannshugurinn, mannslíkaminn eða
HARMLEIKURINN í TÍBET
89
mannlegt mál?“ varð hann að svara
tafarlaust: „Mannshugurinn. Manns-
líkaminn og mannlegt mál eru
þjónar mannshugarins."
Þá spurði kennarinn tafarlaust:
„En er hugur þinn raunverulega til
eða ekki?“
„Um það er ekkert hægt að
segja,“ var þá svar Dalai Lama,
„vegna þess að hann hefur enga
lögun og engan lit.“
Venjulegast stóðu þessar prófæf-
ingar yfir klukkustundum saman.
En þennan dag endaði morgunæf-
ingin snögglega, þegar sendinefnd
kom til hallarinnar til þess að hafa
tal af Dalai Lama. í henni voru
þrír kínverskir hershöfðingjar. Hinn
ungi ríkisstjórnandi vissi það af
langri reynslu, að þetta yrði
óskemmtilegur fundur.
Formaður kínversku sendinefnd-
arinnar var Tan Kuan-san hers-
höfðingi, réttlínukommúnisti, 51 árs
að aldri, sem hafði verið óbreyttur
hermaður á hinni löngu hergöngu
Mao Tse-tungs árið 1935. Helztu
persónueinkenni hans voru signar
axlir, gular tennur og ilmvatns-
stækja. Hann var algerlega tillits-
laus atvinnuhermaður og mikill
drykkjumaður.
Strax og sendinefndinni Hafði
verið vísað inn í langa, mjóa fund-
arherbergið, tók Tan hershöfðingi
að bera fram ýmsar minni háttar
umkvartanir. En brátt kom hann að
aðalerindi sínu. Hann hafði haft
samband við stjórnvöldin í Peking