Úrval - 01.05.1970, Blaðsíða 93
HARMLEIKURINN í TÍBET
91
orð um þessa hlið málsins: „Hversu
miklu ofbeldi sem við erum beitt-
ir, þá væri það samt ekki rétt að
svara því með gagnofbeldi." En
samt gerði hann eftirfarandi játn-
ingu: „A vissan hátt dáðist ég
að hinum virku skæruliðum.“
Hann viðhafði eftirfarandi orð um
hina kínversku innrásarseggi: „Því
er eins farið með þá og aðra inn-
rásarseggi. Þeir geta ekki komið
auga á hina einu orsök uppreisnar-
innar gegn þeim, þ. e. að fólkið
kærir sig ekki um þá í landi sínu
og er reiðubúið að fórna lífi sínu
til þess að losna við þá.“
Gervallt Tíbet virtist nú hafa
breytzt í eina stóra púðurtunnu, og
ókyrrðin meðal Khambanna kynni
að verða sá neisti, sem kveikti í
henni. Þessi ótti Dalai Lama reynd-
ist á rökum reistur, skömmu eftir
að kínversku hershöfðingjarnir
voru gengnir af fundi hans. Móðir
hans kom þá til þess að snæða há-
degisverð með syni sínum, en það
gerði hún jafnan einu sinni í viku.
Hún bjó í stóru húsi fyrir neðan
Potalahöllina. Aðstæður hennar
voru aðrar en sonar hennar, því að
hún gat ferðazt um meðal fólks án
allrar viðhafnar og vissi því gerla,
hvað var að gerast. Hún skýrði
honum frá því, að Lhasa líktist nú
stöðugt meira „víggirtum herbúð-
um“ með hverjum deginum er liði.
Hún sagði, að stríðsmenn úr flokki
Khambanna flýðu nú í stöðugt
stærri straumi undan kúgun Kín-
verja í austurhluta landsins og
væru nú teknir til að streyma til
borgarinnar í svo ríkum mæli, að
það væri augsýnilegt, að íbúatala
hennar yxi með degi hverjum. Og
hún sagði, að þeir brynnu allir í
skinninu eftir því að mega ráðast
gegn Kínverjum.
Það var sem einhver ógnvænleg-
ur fyrirboði birtist Dalai Lama,
meðan hann hlustaði á móður sína.
„Ég veit ekki, hvenær að því kem-
ur,“ sagði hann við hana dapur í
bragði. „En einhvern daginn munu
Kínverjar taka af okkur allt, sem
við eigum, og þeir munu drepa eins
marga Tíbetbúa og þeir geta.“
ÓGN í TÍBET
Skapgerð og lífsskoðanir hinna
tveggja leiðtoga þeirra afla, sem
nú mundu brátt takast á, voru
mjög ólíkar, enda aðhylltust þeir
gerólík hugmyndakerfi. Annars
vegar var Tan hershöfðingi, óhefl-
aður persónugervingur efnishyggju-
trúar kommúnismans. Hins vegar
var Dalai Lama, mannvera, sem
var álitinn vera Buddha sjálfur
endurfæddur, hinn lifandi persónu-
gervingur Chenrezi, verndarguðs
Tíbets.
í hvert skipti er stjórnandi Tí-
bets deyr, en hann ber jafnan heit-
ið Dalai Lama, þá álíta Tíbetbúar,
að andi hans taki sér bústað í svein-
barni sem verður svo næsti Dalai
Lama. Þeir tala reyndar aldrei um,
að Dalai Lama deyi, heldur haldi
til Heiðursvalla. Þetta sveinbarn
verður svo að finna með hjálp ým-
issa fyrirboða, tákna og vissra próf-
ana. Það var hópur munka, sem
fann hinn 14. Dalai Lama í þorp-
inu Taktser nálægt landamærum
Tíbets og Kína árið 1937. Hann var
þá tveggja ára. Munkarnir tóku