Úrval - 01.05.1970, Síða 94
92
ÚRVAL
_ ‘ ---- n
KRISTlN
KRISTJÁNSDÓTTIR,
VERKFRÆÐINGUR
Kristín Krist.iánsdóttir er
fædd 21. lanúar 1919 á Dag-
varðareyri. Foreldrar hennar
eru Krist.ián Sigurðsson og
Sesilía Eggertsdóttir. Hún lauk
stúdentsprófi frá Akureyri 1938
og prófi i forspjailsvísindum frá
Kaupmannahafnarháskóla árið
eftir. Síðan hóf hún nám í efna-
verkfræði og lauk prófi í henni
frá Tækniháskó-lanum í Kaup-
mannahöfn 1945. Hún var verk-
fræðingur hjá Fiskimálanefnd
1946—1948 og sérfræðingur i
búnaðardeild Atvinnudeildar
Háskóla Islands 1948—44. Hún
hefur verið kennari í efnafræði
við Lundby Gy!mna,sium i
Gautaborg frá 1966. Kristín er
gift Peter Hallberg, dósent í
bókmenntasögu við háskólann
í Gautaborg.
V______________________________)
strax til að prófa hann á ýmsa vegu.
Þegar þeir sýndu honum heilmikið
samsafn ýmissa hluta, valdi hann
sér talnaband, trumbu og göngu-
staf, en allir þessir hlutir höfðu til-
heyrt 13. Dalai Lama, sem hafði
dáið árið 1933. Þar að auki hafði
drengurinn ýmis einkenni, sem
munkarnir voru að leita að, stór,
utstæð eyru og fæðingarbletti á
bolnum.
Sveinbarn þetta var síðan flutt
til Lhasa og leitt með viðhöfn til
hins gullna hásætis í Potalahöll-
inni sem Dalai Lama í febrúarmán-
uði árið 1940. Svo hófst margra ára
erfitt nám og trúarlegt uppeldi
drengsins. Það varð skjótt augsýni-
iegt, að hinn nýi stiórnandi ríkis-
ins hafði miklu víðfeðmari áhuga-
mál en nokkur fyrirrennari hans
hafði haft. Hann lærði undirstöðu
í ensku hiáÍDarlaust. Hann gerðist
lærður mjög í stjörnufræði og lærði
íafnvel dálítið í læknisfræði. Hann
lukti upp leyndardómi rafmagns-
ins og hafði óskaplegan áhuga á öll-
um tæknilegum og vélfræðilegum
hlutum, þótt „eneinn hafi getað
unplýst hann nokkuð um slíka
hiuti", eins og hann komst síðar að
orði.
Hann hélt áfram að lifa þessu
hljóðláta lífi náms, hugleiðslu og
bænahalds þangað til í janúarmán-
uði árið 1950, þegar nýja kommún-
istastjórnin í Peking lýsti yfir
þeirri ætlun sinni að ,,frelsa“ Tí-
bet.
Dalai Lama var þá ekki orðinn
fullra 15 ára. Ríkisstjórinn, sem var
vanur að ríkja, þangað til Dalai
Lama var orðinn 18 ára gamall, og