Úrval - 01.05.1970, Page 95
HARMLEIKURINN i TÍBET
93
„Kashag“, en svo nefnist tíbetska
ríkisstjórnin, báru því enn fulla
ábyrgð á stjórn ríkisins. Eftir fyrstu
alvarlegu landamæraskærurnar við
austurlandamæri Tíbets sendu tí-
betskir stjórnarembættismenn strax
símskeyti til Bretlands, Bandaríkj-
anna, Indlands og Nepals og fóru
fram á hernaðarhjálp til þess að
reka kommúnistana af höndum sér.
Stjórnarerindrekar lögðu af stað
ríðandi frá Lhasa til Indlands, og
þaðan flugu þeir svo til Washing-
ton og Lundúna.
En ensku og bandarísku ríkis-
stjórnirnar lýstu því yfir afdráttar-
laust, að þær gætu ekki veitt neina
hjálp. Þær báðust báðar kurteis-
lega undan því að taka á móti
sendinefndum frá Tíbet. Indverska
ríkisstjórnin neitaði Tíbet líka um
hernaðarhjálp og ráðlagði Tíbetbú-
um jafnvel að sýna kommúnistum
ekki neina mótspyrnu. Tíbetbúar
stóðu því algerlega einir og gátu
ekki vænzt aðstoðar neinna utan-
aðkomandi afla, þegar kínverskar
hersveitir tóku að streyma inn yfir
landamæri landsins þ. 7. október
árið 1950.
Dalai Lama hafði þá ekki enn
fengið nein veraldleg völd. En rík-
isstjórnin bað piltinn hátíðlega um
að taka á sig ábyrgð af stjórn lands-
ins, þegar pínulitli tíbetski herinn
varð að hörfa undan ofureflinu í
austurhéruðum landsins. Dalai
Lama maldaði í móinn og sagðist
vera of ungur til slíkrar ábyrgðar.
Hann sagðist hvorki þekkja um-
heiminn né stjórnmálalífið. Samt
varð hann við þessari bón. Þessi 15
ára gamli konungsguð yfirgaf því
STEFÁN HILMARSSON,
BANKASTJÓRI
Stefán Hilmarsson er fæddur
23. maí 1923 í Reykjavík. For-
eldrar hans eru Hilmar Stefáns-
son og Mairgrét Jónsdóttir.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1945 O'g lögfræðiprófi frá Há-
skóla íslands 1951. Hann var
fulltrúi á skrifstofu flugvallar-
stjóra 1951 og blaðamaður við
Morgunblaðið árið eftir. Hann
hóf starf í utanríkisþ.iónustunni
1952 og var sendiráðsritari í
Washington 1956—62. Hann var
skipaður bankastjóri Búnaðar-
banka Islands 1962 og hefur
gegnt því embætti síðan. Stefán
er tovæntur Sigriði Kjartans-
dóttur Thors.
^_______________________y