Úrval - 01.05.1970, Síða 125
ÆVINTÝRIÐ UM GRIMMSBRÆÐUR
123
Titill bókarinnar var upphaflega
Kinder- und Hausmárchen (Ævin-
týri fyrir börn og heimili). En við
þekkjum hana betur undir nafninu
Grimmsævintýri í höfuð bræðranna
tveggja, sem rituðu hana — Jak-
obs og Wilhelms Grimm. Frásögn-
in um tilurð hennar er einstæður
kafli innan heimsbókmenntanna.
Það hófst með því, að einn kenn-
ara bræðranna við háskólann vakti
áhuga þeirra á sagnfræðirannsókn-
um. A könnunarferðum sínum um
fortíðina urðu báðir bræðurnir
gagnteknir af hinum gömlu ævin-
týrum, en þó ekki vegna þess að
þau væru börnum til skemmtunar.
Grimmsbræður voru vísindamenn,
og fyrir þeim höfðu þessar gömlu
sögur sama gildi og leirbrot fyrir
fornleifafræðingi - þær vörpuðu
liósi á líf og hugsunarhátt fóiks á
liðnum tímum.
Ævintýrin fylgdu hinni æva-
gömlu frásagnarlist, sem hafði lif-
að með mönnum löngu fyrir daga
ritlistarinnar. Nokkrum þeirra
hafði verið safnað saman og þau
gefin út, en langflest höfðu þó
aldrei verið rituð niður, og aðeins
fáeinir gamlir bændur úti um land-
ið kunnu þau. Með þeim myndu
ævintýrin deyja, sem mörg hver
voru yfir þúsund ára gömul. Þess
vegna var brýn nauðsyn að skrá
þau, áður en frásagnarmenn þeirra
hyrfu af sjónarsviðinu.
Jakob var 22 ára og Wilhelm 21,
er þeir byrjuðu að leita uppi gam-
alt fólk með gott minni. Það var
ekki auðvelt verk. Þeir, sem kunnu
ævintýrin, álitu bræðurna einhverja
sérvitringa. Hvernig í ósköpunum
gátu fullorðnir menn haft áhuga á
að heyra um nornir, talandi steina
og pönnukökuhús? En þeir voru
vissulega snjallir ungir menn með
ómótstæðilegan sannfæringarmátt.
Fjárhirðir nokkur var fús til að
segja þeim gömul ævintýri síðdeg-
isstund, ef hann fékk í staðinn vín-
flösku til að smyrja með hálsinn.
Gamall riddaraliðsforingi, sem ekki
hafði átt sjö dagana sæla, var glað-
ur yfir að geta bætt við nokkrum
ævintýrum, ef hann fékk nokkra
buxnagarma að launum. Gömul
kona, sem bjó á elliheimili, var aft-
ur á móti erfiðari viðfangs. Hún
hélt því statt og stöðugt fram, að
ef menn heyrðu hana segja öðrum
en börnum slík ævintýri, ætti hún
á hættu að verða lokuð inni á vit-
firringahæli. Þess vegna fékk Wil-
helm Grimm einn vina sinna til að
koma með börn sín til gömlu kon-
unnar, og þegar hún þannig hafði
fengið hina réttu áheyrendur, var
hún fús til að hefja frásögnina:
„Það var einu sinni....“ Vinurinn
skrifaði síðan sögurnar niður, og
Wilhelm hlustaði á, falinn bak við
gluggatjöldin.
Bezti heimildarmaður Grimms-
bræðra var þó gömul skraddara-
kona. Það var ekki einungis, að
hún segði prýðisvel frá, heldur
notaði hún sömu orðin í hvert
skipti. Ef hún talaði of hratt, og
þeir báðu hana að byrja ajð nýju á
einhverjum kafla, endurtók hún
hann hægt án nokkurrar breyting-
ar.
Á fimm árum höfðu bræðurnir
safnað 86 ævintýrum. Þar sem þeir
voru fyrst og fremst vísindamenn