Úrval - 01.05.1970, Page 129
127
Það er hægt
að lækna
krabbamein
— í einu tilfelli af tveim,
ef sjúkdómsgreining er
gerð i tíma.
m það bil 6 prósent allra
kvenna fá einhvern
tíma um ævina
krabbamein í brjóst.
Þessi tiltölulega háa
tíðni hefur leitt til þess að Alþjóða-
heilbrigðisstofnunin (WHO) hefur
átt frumkvæði að alþjóðlegum
rannsóknum með það fyrir augum
að finna áreiðanlegar aðferðir til
að sjúkdómsgreina og meðhöndla
krabbamein í brjósti.
í hinni alþjóðlegu baráttu við
krabbamein er litið á krabbamein
í brjósti sem ákaflega lærdómsríkt
vandamál. Líffræðilegt eðli þessa
meins, möguleikarnir á að upp-
götva það í tæka tíð og aðferðirn-
ar sem beitt er til að vinna bug á
því hafa vakið sérstakan áhuga
vísindamanna á þessu sviði, og þess
vegna hefur Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunin komið upp rannsókna-
kerfi sem lýtur stjórn alþjóðlegrar
upplýsingamiðstöðvar.
Alhliða starfsemi Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar til að hafa
hemil á útbreiðslu krabbameins
leggur sérstaka áherzlu á varnar-
ráðstafanir. Önnur mikilvæg hlið
þessa máls — tímanleg uppgötvun
krabbameins —- er talin svo mikil-
væg, að hún var meginumræðu-
efni alþjóðaheilbrigðisdagsins 7.
apríl 1970.
ALLSHERJAREFTIRLIT
Nýjustu skýrslur gefa til kynna,
að hægt sé að lækna um helming
allra krabbameinssjúklinga, ef
sjúkdómurinn er uppgötvaður í
tæka tíð og sjúklingurinn .með-
höndlaður á snöggan og réttan hátt.
Skýrsla frá sérfræðinganefnd Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar um
tímanlega sjúkdómsgreiningu
krabbameins hefur nýlega verið
birt. í skýrslunni er varpað ljósi á
þær ráðstafanir sem gera þurfi og
lögð sérstök áherzla á allsherjar-
eftirlit með íbúum hvers lands.
Sérfræðingar leggja áherzlu á, að
tilteknar tegundir krabbameins séu
fátíðari en áður vegna þess að tek-
ið hafi verið upp alisherjareftirlit.
Það er mikilsvert m. a. af eftirtöld-
um sökum:
— í mörgum tilvikum byrjar ill-
kynjaður sjúkdómur á skeiði, sem
getur varað mánuði eða ár, þegar
hann er á því stigi, að hægt er að
lækna hann;
— flestir krabbasjúkdómar byrja
með staðbundinni meinsemd, sem
hægt er að fjarlægja. sé hún upp-
götvuð í tæka tíð;
- World Health —