Goðasteinn - 01.03.1969, Síða 25

Goðasteinn - 01.03.1969, Síða 25
mun hann hafa legið í þrjú ár. Hann var mjög rólegur í allri slnní legu, enda var hann guðhrædd og góð sál. Bað hann mig oft að lesa fyrir sig og þá alltaf guðsorð, annað hvort í Sturmshugvekj- um eða Passíusálmunum. Hafði hann gert ráð fyrir, að þær bæk- ur yrðu látnar í kistu hans að honum látnum, og var svo gert. Fleiri ráðstafanir mun hann hafa gert fyrir útför sinni. Svo er það eitt fagurt vorkvöld (það mun hafa verið vorið 1901), um fjósgjafir, að Guðrún Jónsdóttir vinnukona á Brekkum ætlaði að fara að gefa í fjósið, ég var að bera að henni laupana, en Sig- urður húsbóndi okkar var í hlöðu að taka til heyið. Heyrum við þá brest mikinn frá fjósinu. Guðrún kemur hlaupandi út úr fjós- inu og segir: ,,Ef til er vábrestur, þá var hann þetta.“ Þess má geta, að Guðrún hafði mjög sljóa heyrn. Nýbúið var að setja kartöflur til spírunar í fjósinu, þannig, að borð höfðu verið negld þvert á stoðirnar, þakplötur lagðar þar á ofan og kartöflunum raðað á þær. Töldum við nú víst, að þessi umbúnaður hefði bilað og kartöflurnar lægju í flórnum. En allt var með kyrrum kjörum. Degi síðar, 14. júní, dó Guðmundur gamli Runólfsson, og voru borðin undan kartöflunum notuð í kistu hans. Kom þar fram vá- bresturinn, er við heyrðum. Annað atvik bar við á meðan Guðmundur lá á börunum. Á Brekkum hafði verið alinn kálfur um veturinn. Hann var í miklu afhaldi hjá Guðrúnu fjósakonu. Hafði hún þá venju að færa honum einhverja hressingu um miðjan daginn. Kálfurinn var gullfallegur og stálhraustur. En næsta dag, er Guðrún kemur í fjósið til að gefa kálfinum miðdagsdrukkinn, liggur hann steindauður á básn- um, með hausinn aftur með síðunni, rétt eins og hann hefði dáið í svefni. Kjötið af litla kusa bar engin merki sóttar og var auðvitað haít í erfi Guðmundar. Næturgisting í Krýsuvik Halldór Teitsson fór ungur til sjóróðra eins og siður var á þeirri tíð. Veturinn 1909 reri hann í Grindavík. Lagði hann upp í ver- Goðasteinn 23
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.