Goðasteinn - 01.03.1969, Side 42
varð fyrir svörum og sagði: „Gunna er svo ansvíti dugleg.“ Ekki
var meira sagt, en mér fannst, að ég mætti vel við una.
Heimilið í Árkvörn var mikið bóka- og menningarheimili. Gest-
kvæmt var þar á öllum árstímum og alltaf vel séð fyrir góðgerðum.
í dragkistu inni í stofu átti Þuríður jafnan soðið hangikjöt, flat-
kökur og smjör í öskjum að grípa í, þegar gest bar að garði.
Á Reynifelli
Ég var fjögur ár í Árkvörn, síðustu búskaparár Þuríðar. Fyrir
þrábeiðni Þóru Árnadóttur á Barkarstöðum réðist ég vinnukona
til foreldra hennar, Árna Guðmundssonar og Guðrúnar Guðmunds-
dóttur á Reynifelli. Þar var þá eitt mesta rausnar- og myndar-
hcimili í Rangárvallasýslu. Efni voru þar næg og fjöldi manns
naut góðs af þcim. Tvær kornbyrður voru í búi Árna, mismunandi
stórar. Á þcirri minni var ártalið 1856 og fangamörk hjónanna.
Þessar byrður voru fylltar af korni á lestunum, og sú stærri var
ætluð fátæklingum. Þeir komu margir, þegar fór að líða út á á
vctrin, mcð pokaskjatta og fóru allir glaðari en þeir komu. Það
voru tvær kornskálar til á heimilinu, renndar úr tré. Stærri skálin
tók fjórðung, hin mun minna. Alltaf bað Árni um stærri skálina,
þegar hann ætlaði að gefa komumönnum korn. Honum fannst
það engin gjöf, hvað það var minna en fjórðungur.
Heimilið var vel birgt að öllu. Aðeins einu sinni kom það fyrir
í búskap Árna, að hann varð eldiviðarlaus. Eldiviðinn þraut um
páska, svo ckki var hægt að sjóða páskahangikjötið. Á páskadags-
morguninn sást til manns með klyfjahest upp með Reynifellsöldu.
Mig minnir, að það hafi verið Árni á Sámsstöðum. Hann kom með
vænar hcstklyfjar af góðri skán að færa Árna, og var þá ekki
beðið með að setja upp hangikjötspottinn. Hann var ekki mál-
skrafsmaður hann Árni heitinn á Reynifelli, en seinna sagði hann,
þegar hann minntist á þessa gestakomu: ,,Ég hugsa, að hesturinn
hans hafi ekki farið laus aftur.“
Árni var fjárríkur. Um réttir á haustin var byrjað að slátra, og
síðan var slátrað tvisvar í viku fram undir jól, þetta fjórar kindur
í hvert sinn, síðast jólaánni daginn fyrir Þorláksmessu. Á hverju
40
Godasteinn