Goðasteinn - 01.03.1969, Síða 51

Goðasteinn - 01.03.1969, Síða 51
lokið. En í stað saumlánsins lofa Meðallendingar að Veringar skuli fá það timbur, sem kunni að ganga af við smíði Langholts- kirkju. Kirkjusmíðin er hafin, en yfirsmiðurinn hafði lofað, þegar hann tók verkið að sér fyrir 2 árum, að hann yrði 3 mánuði að reisa kirkjuna og fullgera með 4-5 mönnum. Hann afhendir umboðs- manni og prófasti kirkjuna fullsmíðaða 14. desember, en 5. janúar 1864 sendir umboðsmaður amtmanni úttektargjörð hinnar nýju kirkju á Langholti gjörða af Sigurði snikkara Sigurðssyni. En þeg- ar prófastur visiterar Langholtskirkju næsta sumar, tekur hann upp í visitasíu sína nákvæma lýsingu Sigurðar á stærð, efni og viðum kirkjunnar. Heildarreikninga kirkjunnar hefi ég ekki fundið, senni- lega aldrei gerðir eftir brcfum og bókum umbm. og sóknar að dæma. En síðasta heildarupphæðin, sem ég hefi fundið, að nokkru byggða á áætlun umbm., er 2508 rbd., en allmargir reikningar bárust eftir það. Þannig stóð hin nýja Langholtskirkja fullbúin við áramótin 1863 -1864, - þá hæst og tígulegust allra húsa í sókninni, eins og hún er enn í dag að einni öld liðinni. Hvílíkt framtak. En sóknin var prestlaus. Nágrannaprestarnir, þeir Jón prófastur Sigurðsson á Mýrum og séra Jón Jakobsson í Ása- og Búlands- sóknum lofa að þjóna í sókninni, meðan ekki fáist prestur þangað. En sóknin er þá fjölmenn, - býlin 66 en sóknarbörnin 401. Prest- laus gat sóknin ekki verið. Langtímum saman gat verið ómögulegt að ná prestsfundi. I aprílmánuði 1865 var samið langt og ýtarlegt bónarbréf til amtsins, þar sem greint er frá legu sveitarinnar, hætt- um og erfiðleikum sem fylgja að ná prestsfundi, og beðið að prest- ur verði settur að Langholti. Bréfið er skrifað með hendi Ingi- mundar hreppstjóra og auðfundið, að hann hefur samið það. Undir bréfið skrifa 44 sóknarbændur, bæði úr Út-Meðallandi og af Steins- mýrarbæjum. Bréfinu lýkur á þessa leið: „Þessar hér taldar ástæður, að prestar úr nefndum sóknum ekki geta komizt til að embætta, eins og þeir hafa ákveðið fyrir fram, sakir framanskrifaðra orsaka, að til þeirra verður ekki náð til að skíra veik börn, ekki til að kasta moldu á lík, og það sem yfirtekur, að geta ekki náð prests- fundi til dauðvona manneskju, sem óskar að meðtaka Drottins Godasteinn 49
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.