Goðasteinn - 01.03.1969, Page 58
Ölafur Örmssoil:
Hvað var það?
Okkur, sem komin erum á efri ár, er flestum þannig farið að
verða tíðlitið til liðinna ára, við erum hætt að mestu að horfa til
framtíðarinnar, væntum þaðan vel flest, af skiljanlegum ástæðum,
lítilla afreka frá okkar hendi, cr frásagna séu verð. Fer þá einatt svo,
að fyrir minnissjónum manna birtast ýmsir atburðir, sem ég tel
ekki rétt, að með öllu falli í gröf gieymskunnar mcð okkur, sem
von bráðar erum komnir að fótum fram en lifðum atburðina.
Ég ætla nú að segja frá einum atburði, sem ég og fleiri voru
heyrendur að og sem þá og enn er okkur, er enn lifum, með öllu
óskiljanlegur, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir þá og síðar til að fá
skýringu á:
í byrjun árs 1927, eða nánar tiltekið milli nýárs og þrettánda,
fórum við fjórir menn úr Hafnahreppi í Gullbringusýslu upp í
Hafnaheiði til að leita kinda, er okkur vantaði. Menn þessir voru:
Guðmundur Salómonsson, Ragnheiðarstöðum, Magnús Jónsson,
Hvammi (unglingspiltur þá, síðar oddviti Hafnahrepps), Magnús
bóndi Guðmundsson, Vesturhúsi og ég, Ólafur Ormsson, Hjalla,
er þetta rita.
Þennan dag, sem um getur, var einmuna fagurt veður, skaf-
heiður himinn, blæjalogn, frost nokkuð mikið og hrímfall óvenju
mikið, enda hafði svo verið 'undanfarin dægur, svo nú var vel
sporrækt, einkum er ofar kom í hciðina.
Vegna þess, hvað fámennir við vorum, gengum við fyrst inn að
Ósabotnum. Hófum svo þaðan leitina um Hafnaheiði að innanverðu
með okkur, upp að Grindavíkurhrauni. Þannig var í leitir skipað,
að ég gekk vestast upp eftir um Grákolluhól til Stapafells en Magn-
ús Jónsson næstur mér og austar. Skildu þcir Guðmundur Saló-
56
Godasteinn