Goðasteinn - 01.03.1969, Síða 65

Goðasteinn - 01.03.1969, Síða 65
Kötlugosinu 1721 braut hann niður og færði í kaf í sand og möl. Hefir því bærinn staðið þar rúmlega 800 ár. Nú er svo komið, að þess sjást engin merki, að þar hafi bær staðið, en þó er enn hægt að benda á staðinn, þar sem hann áður var. Fyrir Kötlugosið 1860 mátti sjá þar leifar af hrundum veggjum úr einu húsi, og talsvert var þar af eldhúsösku ofan í sandinum, og líka fundust þar hálfbrunnar spýtur. Veit ég, að þetta er satt, því ég heyrði gamla menn í Höfðanum um þetta tala, og voru þeir sjónarvottar. Nálega hurfu allar þessar leifar í Kötlugosinu 1860, en þó mátti sjá þar allt til 1918 dálítið af grjóti og á einum stað tvö eða þrjú lög af hleðslu úr vegg eða gaflaði. En nú sést ekkert af þessu lengur. Þessar síðustu leifar af bænum hirti Katla í gos- inu 1918. Til þess að geta bent á þennan stað, svo ekki glatist vitneskja um, hvar bærinn í Hjörleifshöfða stóð frá landnámsöld til ársins 1721, verð ég að lýsa kennileitum í næsta nágrenni og benda á hann á þeim forsendum. Þegar farið er upp klifið, sem liggur upp Höfðann að túninu uppi, er á hægri hönd hátt fell, sem heitir Rituberg. Vinstra megin er stór klettur, sem heitir Sláttubrekkuhaus, en brekkan heitir Sláttu- brekka. Innan við hana tekur við önnur brekka, sem heitir Bæjar- staður. Að ofan skilur þessar brekkur moldarflag, en að neðan ná þær saman.( Bæjarstaður nær svo inn að næsta gili, sem er allstórt og nær frá sandi alveg upp á fjallið. Ofarlega í Bæjarstað eru kletta- hamrar og á einum stað, innarlega í brekkunni, gengur þunnur klettarani langt niður eftir henni og þar litlu innar endar brekkan í hallalitlum jaðri, og framan undir honum voru áður nefndar leifar af húsarústunum, og þar stóð bærinn. Svo kom Kötlugosið 1721, þann 11 maí, og hefir eflaust verið eitt af þeim stórkostlegustu, sem komið hafa. Jökulflóðið flæddi yfir allan Mýrdalssand með feiknar- legum jakaburði. Það kiofnaði á Hjörleifshöfða og sópaði burtu öUu graslendi norðanundir Höfðanum, högum, engjum og túninu, braut niður bæinn og grandaði honum gjörsamlega. Svo var mikil ferð á jökulflóðinu, að húsfreyjan og smalamaður, ásamt ungbarni í vöggu, björguðust naumlega, og ekki náðu þau öðru með sér en einum harðfiski, smjöröskjum og einhverju af rúm- Goðasteinn 63
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.