Goðasteinn - 01.03.1969, Page 73

Goðasteinn - 01.03.1969, Page 73
Jón R. Hjálmarsson: Æska og uppgræðsla Æskulýðsmál ber oft á góma á vorum dögum og ekki að ófyrir- synju. Sérhverri þjóð er það hið mesta nauðsynjamál, að sífellt séu að vaxa úr grasi æskumenn og konur, sem séu þeim vanda vaxin að taka við arfinum, varðveita hann og ávaxta til hags- bótar og menningarauka landi og lýð. Yfir þjóðfélag vort hafa gengið á fáum áratugum örari og stór- stígari breytingar en nokkurn gat órað fyrir. Við höfum á ýmsan hátt eignazt nýtt land og nýja þjóð. Ollum hraðfara breytingum fylgja vandamál og höfum við vissulega ekki farið varhluta af þeim. Eitt erfiðasta vandamálið er oft á tíðum að finna heppileg viðfangsefni handa uppvaxandi kynslóð við nýjar aðstæður. Þar er mikið í veði, svo að að ekki skolist verðmæti fyrir borð, þegar hratt cg djarft er siglt. Breytt búseta, vélvæðing og tiikoma þéttbýlis cru allt áberandi cinkenni nýrra tíma. Þéttbýli fylgja nýir lifnaðarhætir og ný lifs- viðhorf. íslendingar cru að eðli og uppruna hjarðmenn og bændur, frjálsir reikcndur um bjartar víðáttur þessa lítt numda lands. Við erum því byrjendur í því að lifa í þröngri sambúð þorpa cg borga. En straumurinn liggur í þá átt, jafnvel út um sveitir landsins, og þróunin verður ekki stöðvuð, hvort sem okkur líkar bctur eða verr. Þar tjóar ekki að mæla gegn. En við getum gert annað og ber að gera það. Við aðlögum okkur nýjum lifnaðarháttum, til- cinkum okkur tæknivæðingu og temjum okkur lífsviðhorf hins þrönga sambýlis þorpa og bæja. Eitt er það sem háir ungu og uppvaxandi fólki meira en margt annað og það er, hversu mjög hefur dvínað snerting þess við landið, þjóðmenningu liðinna kynslóða, atvinnulífið og töfra náttúrunnar. Á morgni þessarar aldar kom fram með þjóðinni öflug hreyfing til menningarlegrar og verklegrar vakningar. Þessi hreyfing megn- Goðasteinn 71

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.