Goðasteinn - 01.03.1969, Síða 74
aði að tendra svo mjög kyndil frelsis og framfara að nægði til að
lýsa þjóðinni rétta leið til manndóms, þroska og fullveldis hins
unga íslands. Þessi vakningaralda var ungmennafélagsskapurinn,
sem svo margt gerði vel og gerir raunar enn, þótt ckki brcnni blysið
lengur svo skært og almcnnt meðal æskumanna þjóðarinnar sem
fyrrum.
Eitt merkilegasta framtak í æskulýðsstarfi, sem ég hef verið
vitni að á seinni árum, cr einmitt komið frá ungmennafélögum
ásamt fleiri aðilum. Á ég þar við hópferðir æskumanna og kvenna
undanfarin sumur inn á auðnir hálendisins til að sá í og græða
þar upp dautt og örfoka uppblástursland. Það er sorgleg staðreynd,
sem ekki þýðir að loka augunum fyrir, að landið okkar er að
eyðast smátt og smátt, blása upp og fjúka á haf út. Og þetta gerist
þrátt fyrir stórauknar framfarir, ræktun og vélvæðingu í sveitum
landsins. Við vitum vel, að fyrrum var Island miklu grónara en
nú gerist, og segja kunnáttumenn að eyðing skóganna á liðnum öld-
um eigi mikinn þátt í, hvernig komið er. Við það þornaði landið,
jarðvegurinn missti mótstöðuafl sitt og tók að fjúka.
En hverju sem um er að kenna, þá ætti vitneskjan um þessa
eyðingu, hugboðið um að grundvöllur tilveru okkar sé að skríða
undan fótum okkar, að vera okkur áminning og hvatning um að
spyrna á móti. Þess vegna eigum við að leggja okkur fram um að
hamla gegn eyðingaröflunum, stanza þau og snúa því næst vörn
í sókn. Því verður það eitt brýnasta vcrkefni okkar, sem unnum
þessu landi og ætlum okkur og niðjum okkar að lifa hér
fögru og góðu lífi, að beita okkur af alefli að því að græða upp
hálendið jafnframt því sem við skýlum og skreytum undirlendi og
hlíðar skógarlundum og skjólbeltum.
Eitt af vandamálum þeim, sem vaxandi þéttbýli skapar, er það
að börn og unglingar eiga erfitt með að finna sér þar holl og góð
viðfangsefni í tómstundum. En þegar slík viðfangsefni eru ekki
fyrir hendi, er alltaf hætta á ferðum, og því verða hinir eldri að
koma til hjálpar. Unga fólkið þarf tilsögn og starf og verkefnin
bíða hvarvetna við uppgræðslu og ræktun landsins.
Það sem gera þarf, virðist í stuttu máli vera, að Landgræðsla
íslands, Skógrækt ríkisins, Búnaðarfélag Islands og fleiri opin-
72
Goðaste'mn