Goðasteinn - 01.03.1969, Side 75

Goðasteinn - 01.03.1969, Side 75
berir aðiljar tækju höndum samaii við fjöiménn félagssamtök eins og ungmennafélög, verkalýðsfélög, bæjar- og sveitarfélög og mörg önnur menningar- og hagsmunasamtök víða um iand um að skipu- leggja og hrinda í framkvæmd stórfelldri ræktunarherferð, er byggði starfsemi sína að miklu leyti á vinnuafli ungmenna í sumarskólum víðsvegar um landið og þó einkum í hinni frjálsu og fögru náttúru hálendisins. Sú var tíðin að unglingar unnu á íslandi bæði til sjávar og sveita. En allt útlit er fyrir að þetta sé breytt og að unglingavinna heyri að mestu fortíðinni til. Lengi munu þó börn og unglingar í sveitum ekki þurfa að vera aðgerðarlaus utan skólatíma, en í þorpum og bæjum horfir málið öðruvísi við. Þar er þörf róttækra aðgerða, því að ekkert er uppvaxandi kynslóð jafnskaðlegt og iðjuleysi og slæpingsháttur. Því fylgir ekkert gott en aftur á móti fjölmargt illt. Hjá öðrum þjóðum er þetta viðurkennd staðreynd og víða um lönd starfa skólar mikinn hluta sumarsins. Þar er þá lítið kennt bóklegra fræða en höfuðáherzla lögð á að venja börn við útivist, ferðalög og þeim einkum kennt að þekkja landið sitt, sögu þess og ríki náttúrunnar. Slík skólastarfsemi er lítt þykkt fyrirbæri hér á landi og virðist tími til kominn að gefa hcnni meiri gaum. Verkefni slíkra skóla geta verið hin fjölbreytilegustu, allt frá þvi að draga fána að hún, syngja morgunsöngva og hugsa um daglega matseld, til þess að ferðast um og skoða sögustaði, nema jarðfræði og grasafræði mitt í ríki náttúrunnar, klífa fjöll og ganga á jökla og síðast en ekki sízt að gróðursetja skóga og sá grasfræi í örfoka víðáttur óbyggðanna. Vissulega munu margir kalla slíkar hugmyndir skýjaborgir og draumsýnir fjarri raunveruleikanum. En við viljum öll hjálpa til að byggja upp þróttmikið og menningarlegt samfélag á íslandi og jafnframt bæta landið og gera það sífellt betra og byggilegra. Til þess að svo megi verða, þurfum við sífellt að hafa augun opin fyrir því, sem miður fer, leitast við að bæta úr og búa sífellt betur í haginn fyrir framtíðina. Verkefnin blasa við í öllum áttum og bíða þess, að við tökum til hendi. Við vitum að með hverju sumri stækkar hópur iðjulausra barna Goðasteinn 7 3

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.