Goðasteinn - 01.03.1969, Qupperneq 76
og unglinga. Við vitum að landið okkar er að blása upp, cyðast og
minnka með ári hverju. Og við vitum líka, hvað gera þarf í þess-
um vandamálum. Þess vegna ber okkur að hefjast handa.
Mikill fjöldi ungs fólks þráir að fá tækifæri til að sýna hug sinn
til ættjarðarinnar í verki. En slík tækifæri liggja ckki ætíð í aug-
um uppi. Okkur ber því að auðvelda æskufólki að finna þau og
hjálpa því til að vinna sjálfu sér og landi sínu gagn.
Hvergi mun uppblástursmökkurinn af hálendinu verða eins svart-
ur og ógnþrunginn og yfir byggðum Suðurlands við vissar aðstæður.
Sunnlendingar skynja því ef til vill betur en flestir aðrir, hvaða
voði er þarna á ferðum. Það er ánægjulegt til þess að hugsa, að úr
byggðum Suðurlands hafa undanfarin sumur farið hópar ung-
mennafélaga til landgræðslu inn á óbyggðirnar. Sú starfsemi fór
fram í samvinnu við Landgræðslu íslands. Nýverið frétti ég að
Páll Sveinsson landgræðslustjóri hefði á prjónunum ráðagerðir um
stóraukna ræktun og girðingarvinnu á mestu uppblásturssvæðun-
um á sumri komanda og framvegis. En hann skortir tilfinnanlega
vinnuafl og er reiðubúinn til samvinnu við félagssamtök, er koma
vilja til hjálpar og skipuleggja vinnuflokka æskufólks til land-
græðslustarfa. Sama máli mun gegna um Skógrækt ríkisins, er
sífellt þarfnast fleiri vinnandi handa.
Hvernig væri nú fyrir félagssamtök á Suðurlandi, svo sem Hér-
aðssambandið Skarphéðin, Búnaðarsamband Suðurlands, Kvcnfé-
lagasamband Suðurlands og önnur menningarsamtök að taka for-
ystu í þessu efni. Þannig mundu þau vinna landi og þjóð ómetanlegt
gagn og reisa sér um leið óbrotgjarnan minnisvarða á spjöldum
sögunnar. í þessum byggðarlögum býr duglegt fólk með brenn-
andi áhuga á ræktun, menningu og framförum. Það mundi með
gleði leggja þessu máli lið. Ég bið ykkur því að hugleiða málefnið
og koma því á framfæri við rétta aðila.
Þótt úti sé dimmt vetrarkvöld með frosti og fjúki, þá líður það
brátt hjá. Við hugsum líka ekki aðeins um líðandi stund, heldur
lengra. Og nú er kominn tími til að hugsa fyrir vorinu og verk-
efnunum, sem bíða okkar í framtíðinni.
Erindi á samkorau í Fclagslundi í Gaulvcrjabæjarhreppi 8. marz 1969.
74
Goðasteinn