Goðasteinn - 01.03.1969, Page 85
Á þessum árum bauðst mikil vinna og voru ráðnir nýir menn
til starfa. Þrengsli voru til baga, þegar við vorum orðnir 5-6 sam-
an við vinnu. Varð þá að ráði að byggja ofan á verkstæðishúsið
og fékkst þar rúm fyrir hefilbekkina.
Mikil þörf virtist fyrir þetta fyrirtæki okkar, og urðu margir til
að þakka mér fyrir verk okkar og sögðu að þetta eða hitt hefðu
þeir ekki getað gert, ef verkstæðið hefði ekki verið komið.
Árið 1944 gekk í garð. Ég hafði sömu háttsemi með vinnu en
var í vandræðum með sjálfan mig, vantaði þak yfir höfuðið. Tók
ég því fyrir að kaupa mér húslóð úr Helluvaðslandi og byrja á
byggingu íbúðarhúss um sumarið. Steypti ég þá kjallara undir hæð-
ina. Var byrjað á fleiri íbúðarhúsum á Hellu þetta sumar. Næsta
sumar kom ég hæðinni áfram, svo hún varð fokheld, og þriðja
árið fór ég að halda mig í húsinu. Drengirnir mínir, Sigurður og
Bjarnhéðinn, voru mér til mikillar hjálpar við þetta verk. Fluttu
þeir svo inn í húsið til mín, þegar þeir höfðu lokið iðnnámi sínu.
Nú, árið 1967, þegar ég lýk við þessa samantekt mína, er fólk
hér á Hellu um 300, og flestir búa í eigin íbúð. Hér eru starfandi
þrjú trésmíðaverkstæði, eitt bílaverkstæði, ein brauðgerð, ein sauma-
stofa, ein rafgeymagerð og kjötvinnsla. Hér situr héraðslæknir
manna og héraðslæknir dýra. Hér er komið bankaútibú, og hér er
rekið veitingahús. Þá er hér tamningastöð, sem er með um 40 hesta
mikið af vetrinum. Nýtt trésmíðaverkstæði, stærra og á allan hátt
fullkomnara, er komið í staðinn fyrir gamla verkstæðið mitt. Hér
hefur margt breytzt til bóta á skömmum tíma.
Veturinn 1958 varð ég 70 ára og talið sjálfsagt, að ég gerði mér
einhvern dagamun, tæki á móti frændum og vinum til að drekka
með mér afmæliskaffið. Hópurinn, sem kom til að taka í hendina
á mér, varð stór og miklu stærri en ég hafði búizt við. Mér var
þá sýndur meiri heiður en mér bar, í hlýjum orðum, heillaskeytum,
gjöfum, já, jafnvel ljóðum. Síðan hafa árin liðið undrafljótt, og nú er
ég farinn að þreytast og verða aðgerðalítill og læt hverjum degi
nægja sína þjáning.
Ég hef áður getið barna minna og vil aðeins auka þar við orð-
um: Kristrún er gift Magnúsi Guðmundssyni í Mykjunesi, sem fyrr
segir. Margrét er gift Óskari Karelssyni bónda að Miðtúni í Hvol-
Goðasteinn
83