Goðasteinn - 01.03.1970, Blaðsíða 18

Goðasteinn - 01.03.1970, Blaðsíða 18
við kirkjuhornið. Ólöfu brá mjög, og leið yfir hana, þegar hún kom inn. Benedikt dó þetta kvöld og var nýskilinn við, er Margrét varð vör við komu hans. MELTEKJAN Frá fornu fari var melkorn notað til matar í Háfshverfi og hélzt svo fram á mína daga. Mellandið var fyrir framan Háfsósa, fram á Sléttum. Bændurnir í Háfshverfi unnu saman að melskurði, og farið var eftir jarðastærð með skipti á mel, líkt og með skipti á sel og fjöru. Ég hlakkaði alltaf til, þegar farið var að skera stöngina. Þar vann margt ungt fólk saman, og var oft glatt á hjalla við verkið. Við systurnar vorum ekki gamlar, þegar við vorum látnar fara að hjálpa til við melskurðinn. Skorið var með sérstökum ljá, sem nefndur var sigð. Hún var með góðlega álnarlöngu skafti. Sjálfur ljárinn (sigðin) var fimm til sex tommur að lengd, íboginn. Hver maður notaði sína sigð ár eftir ár. Hannes skar fangamörkin á sköftin. Fyrst, þegar ég var að þessu verki, var ég látin skera í hendurnar á fullorðna fólkinu. Við skurðinn var tekið um stöngina, neðan við axið, og hún skorin rétt niður við jörð. Fullorðinn maður skar stöngina upp í vinstri hönd, svo mikið, sem greipin rúmaði. Það magn var nefnt hálfhönd. Hún var lögð frá sér á sandinn. Önnur hálfhönd var krosslögð þar ofan á. Báðar nefndust þær heilhönd eða ein hönd. Mig minnir, að tíu heilhendur hafi myndað kerfi. Bundið var utan um kerfi með melstöngum á sérstakan hátt. Fimm kerfi voru í bagga. Melnum var skipt á milli bændanna, áður en flutt var heim, fram á Sléttum. Hann var settur í bunka þar fram frá og fluttur heim eftir ástæðum. Það var leiðindahökt við að flytja heim stöng- ina, upp yfir Ósana. Henni var bunkað heima við stórt hesthús, sem nefnt var sofnhús um þennan árstíma, annars stóra hesthúsið. Verkið við að ná öxunum af stönginni var nefnt að dusta stöngina. Öxunum var þá barið í dálítið svert tré, sem haft var lárétt í nokkurri hæð, og hrukku öxin niður frá því í byng, sem smáóx. Undir aldamótin síðustu var mest farið að nota melkornið handa reiðhestunum og sandhestunum; þeir urðu svo dólegir af 16 Goðasteinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Goðasteinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.