Goðasteinn - 01.03.1970, Síða 86
Þárður Támasson:
Úr ýmsum áttum
Draugur er tiér - ekki
Við mörk milli Stóra-Hofs og Minna-Hofs á Rangárvöllum,
upp af bænum á Stóra-Hofi, er kalapparnef úr sandsteini, nefnt
Mónef. Hafa margir rist fangamörk sín á það.
Guðmundur Guðmundsson bóksali á Eyrarbakka (f. 1849) ólst
upp á Minna-Hofi hjá foreldrum sínum, Guðmundi Péturssyni
bókbindara og konu hans, Ingigerði Ólafsdóttur. Einu sinni var
hann að reka féð upp úr engjunum og dokaði við hjá Mónefinu.
Tók hann upp sjálfskeiðung sinn og fór að rista í klöppina. Átti
það að verða þessi setning: Draugur er hér ekki. Hann var bú-
inn að rista orðin: Draugur er hér, er dimm rödd sagði hátt og
skvrt inni í berginu:
Fí, fí, fú, fú.
Hvur ert þú, þú?
Guðmundi brá svo við, að hann hljóp heim til bæjar frá óloknu
orðinu ekki. Þar sagði hann frá því, sem fyrir hann hafði borið,
en ekki var hann ánægður með að geta ckki lokið verki sínu.
Fékk hann í lið með sér Ingvar Ólafsson, sem þá var unglingur
á Minna-Hofi cn síðar bóndi þar, cg stóð hann hjá, meðan orðið
ekki var rist á klettinn. Bar þá ekkert til tíðinda. Líklegt er, að
veður hafi nú afmáð orðin fyrir löngu, en sagan er sönn, heim-
ildarmaður, Magnús Ingvarsson bóndi á Minna-Hofi, hafði hana
eftir föður sínum cg Guðmundi bóksala og var því ve! að frétt
komínn.
84
Goðasteinn