Goðasteinn - 01.03.1970, Blaðsíða 70
Þórður Tómasson:
Mtyiiizi iiiii liulíhi í liyiiliisnfni XVII
Skemman frá Varmahlíð
í Varmahlíð undir Eyjafjöllum hcfur sama ætt setið að búi allt
frá 1785. Þangað flutti þá Jón Vigfússon lögréttumaður frá Fossi
á Síðu, er hrakizt hafði undan Skaftáreldum 1783 út að Ásólfs-
skála. Kona hans var Sigurlaug dóttir séra Sigurðar Jónssonar í
Holti undir Eyjafjöllum, og er ekki að efa, að þær mágsemdir
hafa átt þátt í þeirri staðfestu, cr Jón fékk, þar sem var Varma-
hlíð. Mágur hans, Páll Sigurðsson, var prestur í Holti 1783.
Jón frá Fossi var sonur Vigfúsar lögréttumanns í Skál, Ketils-
r.onar prcsts í Ásum, Halldórssonar prcsts á Kálfafellsstað. Ketils-
sonr.r prests s. st., Ólafssonar prests og sálmaskálds í Sauðanesi.
Jón dó í Varmahlíð 1802. Sonur Jóns, Sigurður stúdcnt, varð
bóndi í Varmahlíð 1814. Hafði hann alizt upp hjá móðurbróður
sínum, scra Páli í Holti, og síðan hjá ekkju hans maddömu Vil-
borgu Guðlaugsdóttur. Sigurður útskrifaðist úr Reykjavíkurskóla
með góðum vitnisburði 1798 en sótti aldrei um prestakall. Hann dó
í Varmahlíð 1862. Sonur hans cg fyrri konu hans, Valgerðar Tóm-
asdóttur frá Eyvindarholti, Tómas, bjó í Varmahlíð um fulla
fjóra áratugi. Kona hans var Sigríður dóttir Einars Högnasonar
stúdents í Ytri-Skógum. Tómas dó 1890. Tveir synir hans urðu
bændur í Varmahlíð, Einar og Sigurður. Einar hóf þar búskap
1881. Kona hans var Þóra Torfadóttir prcntara í Reykjavík, Þor-
grímssonar. Einar dó 1889. Þóra ekkja hans stóð fyrir búi í Varma-
68
Goðasteinn