Goðasteinn - 01.03.1970, Page 21

Goðasteinn - 01.03.1970, Page 21
gerðist þar bóndi mágur hans, Ingimundur Jónsson búfræðingur frá Holti í Stokkseyrarhreppi, og bjó hann í Hala til 1932. Þórður í Hala dó, sem fyrr segir, 1922. Vel fer á, að lokaorð þessa minningaþáttar um Halaheimilið gamla séu tekin úr niður- lagi Óðinsgreinarinnar frá 1914: „Nafn Þórðar í Hala mun verða ritað á söguspjald héraðsins meðal hinna merkustu og nýtustu héraðshöfðingja, sem áunnið hafa sér viðurkenningu fyrir virki- leik verka sinna.“ RICHARD BECK: Ljóðkveðja yfir hafið „Goðasteinn" fékk gæðaleiði, glatt skein honum sól í heiði. Á fjórum dægrum flaug hann vestur, fyrr og nú hinn bezti gestur. Ber hann með sér bláma fjalla, blómaangan grænna hjalla, lækjahjal og fallnið fossa, Fjallkonunnar ástarkossa. Fræða geymir gildan sjóðinn, góðan líka margan óðinn, arf, sem glatast aldrei skyldi, ennþá stendur hann í gildi. Vel sé þeim er manndómsmerki meta og sýna í þörfu verki, hlúa að eldum ættarfræða, ást á þjóð og landi glæða. Goðasteinn 19

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.