Goðasteinn - 01.03.1970, Side 43

Goðasteinn - 01.03.1970, Side 43
enginn vatnsfylling komið fram sandinn, en varla var heimafólk allt komið til bæjar, þegar geysimikil vatnsfylling með jakaburði brauzt suður sandinn, og hefði hún algerlega lokað leið suður í Jökul. Var talin sérstök heppni, að þessi ferð tókst svo giftusam- lega. Hafði nú dagur verið að kveldi kominn og húsfreyja borið1 fólki sínu kveidverð sem á hátíðarkveldi væri, en Jón bóndi greiddi afa tvær krónur sem aukakaup fyrir daginn, og var það' allgóður peningur 1860. Frásögn þessa hef ég skráð eftir föður mínum, Einari Þorsteinssyni, og læt ég þar með útrætt um hið' tiltölulega meinlausa Kötlugos 1860. Um ekkert Kötlugos hefur verið eins greinilega ritað og gosið’ 1918. Skilmerkilegustu lýsingu á því og afleiðingum þess, sem völ er á, er að finna í lítilli bók, sem rituð var þegar að gosinu loknu af þáverandi sýslumanni Skaftfellinga, Gísla Sveinssyni, og fleiri góðum mönnum. Síðan hafa ýmsir skrifað stutta þætti um gosið' og afleiðingar þess, en hvergi hefi ég séð getið sumra þeirra óþæginda, sem gosið olli bændum hér í Mýrdal. Ekki er hægt að segja, að um merka atburði sé að ræða, en allt um það heyrir það sögunni til og má geymast. Um þessi smáatriði ætla ég þá að geta en láta allar frásagnir af gosinu sjálfu eiga sig: Eins og oft hefur verið getið, féll allmikil aska hér í Mýrdal, þó ekki væri það nema smámunir á móti því, sem féll annars staðar, sérstaklega í Skaftártungu og Álftaveri. Öskulagið hér í Mýrdal hafði þó sínar afleiðingar. Fyrst og fremst olli það æði- miklum landskemmdum, a. m. k. á heiðarlöndum í Hvamms- hreppi, og mun vart gróið um heilt eftir þær eftir hálfa öld. Sér- staklega var það á grónum lautum, er sneru móti suðvestri, sem fiög mynduðust. Þangað fauk askan í skafla og eyddi öllum gróðri. Þessar lautir voru að öllu eðiilegu grösugustu blettirnir í heiðunum. Á þessum árum var meirihluti slægna víðast sleginn með orfi og ljá, og víða þekktist ekki annað sláttutæki. Heldur brá sláttu- mönnum í brún, þegar sláttur hófst sumarið 1919, því í grasrót- inni leyndist askan frá haustinu áður, þó grasið hefði sprottið' vel upp úr henni. Varð hún illur skaðvaldur egginni í Ijánum,. Goðasteinn 41

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.