Goðasteinn - 01.03.1970, Page 46

Goðasteinn - 01.03.1970, Page 46
Verður honum þá að orði: „Kemur ein enn. Ætlarðu virkilega að fara að sofa kona, viltu ekki heldur vaka?“ „Gefðu mér þá í nefið,“ svaraði húsfreyja, settist upp og snýtti sér hraustlega. Hin sagan er líka um hjón. Þau bjuggu í Út-Mýrdalnum. Þeg- ar öskumyrkrið var svartast og þrumurnar mestar, sezt bóndi í hálfgerðu hnipri á rúm sitt og segir: „Það held ég, að nú sé bara kominn heimsendir.“ Gellur þá lcona hans við, er setzt hafði við rokkinn sinn: „Þetta getur nú svosum skeð, en ekki er það svo- sum líklegt,“ og hélt áfram að þeyta rokkinn. Svona rólega tóku mýrdælsku konurnar ógnum Kötlu fyrir 50 árum. Skyldu þær taka þeim eins rólega í næsta gosi, og skyldu Mýrdælingar þá eiga slíkan húmor að geta komið álíka mein- lausum gamansögum á gang, þegar öskuéljunum styttir svo upp, að ratljóst verði milli bæja? Eftir venju má óðum búast við því, að hinn gamli ógnvaldur í Mýrdalsjökli fari að rumska, þó jökulhlaupið 1955 hafi e. t. v. einhver áhrif á lengd goshlésins, því trúlega hafa þá eldsumrót verið að verki, þó ekki yrði meira úr. Sigketill myndaðist þá t jöklinum á svipuðum slóðum og gosið varð 1918. Þegar minnzt er á komandi Kötlugos, er mjög raunhæf hugs- un, að reynt sé að gera sér grein fyrir því, hversu mikil hætta á spjöllum geti steðjað að hverri einstakri sveit, er næst Kötlu liggja. En eins og ég hefi gert í þessari stuttu ritsmíð, mun ég eingöngu halda mig við Mýrdalinn í því sem öðru. Ef gengið er út frá því, að gígur Kötlu verði í næsta gosi á sama stað og hann var 1918, eru ekki önnur svæði í Mýrdal í hættu af jökul- hlaupinu en undirlendið frá Reynisfjalli austur á Mýrdalssand. En á þessu svæði eru orðin mikil ræktarlönd, sem sýnilega eyði- legðust, færi svo, að hlaupið næði sér að nokkru marki vestur með Höfðabrekkuhömrum eins og það gerði 1860 - og það sem meira er, að vestast á þessu undirlendi stendur drjúgur hluti kauptúnsins í Vík. Hrýs mér hálfgert hugur við því, hversu langt byggðin þar hefur verið teygð suður á sandinn síðustu ár. Segj- um svo, að ekki sé gert ráð fyrir því - sem enginn getur þó sagt um - að hlaupið nái sér með miklum krafti vestur með hömrunum, en hitt er þá opin leið, að hættulega flóðhátt yrði í 44 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.