Goðasteinn - 01.03.1970, Page 47

Goðasteinn - 01.03.1970, Page 47
Vík, ef álíka jökulhlaup og 1918 kæmi í hvassri suðaustanátt og stórbrimi. Gæti það valdið miklum skaða á húsum og öðrum mannvirkjum. Reynslan hefir kennt, að víða er þörf að standa vel á verði. Læt ég svo þessum þönkum um Kötlu lokið. Að miðsvetrarblóti Nú lengir daginn, vetrarskuggar víkja, vorið nálgast, kætist hugur manna. Komum því saman, gleðjumst meðal granna, glaðværð og fögnuð látum með oss ríkja. Bros er á vör og borð und krásum svigna, bjartir tónar líða um salarkynni. Glösum er klingt og drukkin manna minni, máttugan Bakkus flestir vilja tigna. í ríki hans er sífellt gleði og glaumur, þar glymur hlátur, þar er líf og fjör. Þar verður lundin aftur ung og ör, allt sýnist bjart og glatt sem fagur draumur. En oft verða brautir óljósar og hálar, ýmislegt reynist hverfult, gleðin dvín. Ekki er allt gull, sem glóir bjart og skín, grátur og hlátur fylla sömu skálar. Njótum þó lífsins, meðan tíminn tefst, treystum og styrkjum vináttunnar bönd. Fram undan rísa sólgyllt sumarlönd, syngjum og dönsum, blessum stund sem gefst. J. R. H. Goðasteinn 45

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.