Goðasteinn - 01.03.1970, Qupperneq 49

Goðasteinn - 01.03.1970, Qupperneq 49
þá nemendur, sem voru aðeins stuttan tíma. Fékk ég svar frá Olav Klokk, sem var ritari skólans. Sagði hann mig velkominn að Ási. Þótti mér þetta horfa vel, þótt fjármunir væru af skorn- um skammti. 1 byrjun nóvember 1922 fór ég með skipi til Osló- ar, en áður en ég hélt til Noregs, kom ég við í Skanderborg og hitti þar minn góða vin M. K. Kristensen. Töluðum við margt saman og sagði hann mér meðal annars að ég gæti fengið starf hjá Búnaðarsambandi Jótlands og svo síðar komizt að á dönsk- um landbúnaðarháskóla. En þetta kom ekki til mála, þar sem ég var búinn að ráðstafa mér fyrir veturinn. Einnig taldi ég mér skylt að sjá um Sverri bróður minn og styðja hann til aukinnar menntunar og lærdóms. Hann var þá kominn í 1. bekk Mennta- skólans í Reykjavík. Þegar ég kom til Oslóar, sem var í hráslagalegu veðri, tók það mig nokkurn tíma að finna mér næturstað. Hafðist það þó um síðir og fékk ég inni á gömlu og heldur óvistlegu gistihúsi, sem ég man ekki lengur hvað hét. Næsta morgun tók ég mér far með járnbrautarlest að Ási, þar sem skólinn er. f Landbúnaðarháskólanum að Ási féll mér vel og þar byrjaði ég nám, sem ég þó ekki vissi, hvað lengi mundi vara, því að allt var í óvissu með fjárhag minn. Að vísu hafði ég haft nokk- urt fé upp úr kartöflusendingum til Reykjavíkur, en ekki varð þó sá gróði það mikill að nægði til langframa. Ég lagði því mesta áherzlu á að lesa þær námsgreinar, er snertu jarðrækt, og var á þessum árum orðinn staðráðinn í því að vinna að jarðræktartil- raunum í framtíðinni. Helztu kennarar mínir þennan vetur voru prófessor K. Vik, fjölfróður maður, er kenndi nytjajurtafræði og tilraunatækni, prófessor Hannsten Krammer, er kenndi lífeðlis- fræði jurta, prófessor Isaksen, sem kenndi búfjárfræði, prófessor Sebelin, danskur að ætt, kenndi efnafræði og prófessor L. Njaa, er fræddi okkur um nýrækt og framræslu. Allir þessir kennarar voru prýðismenn, er vildu nemendum sínum allt hið bezta. Þegar kom fram á vetur, sá ég að naumast gæti ég verið þarna lengur en fram í apríl sakir fjárskorts. Vinur minn, M. K. Krist- ensen, lánaði mér 500 danskar krónur og auðvitað gcgn cngri tryggingu, því að hún var ekki til. Var það drengilega gert. Þessa Goðastemn 47
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Goðasteinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.