Goðasteinn - 01.03.1970, Page 56

Goðasteinn - 01.03.1970, Page 56
AUÐUNN BRAGI SVEINSSON: Ljóð um liðna daga Flutt á árshátíð Húnvetningafélags Suðurlands, á Selfossi, 21. febrúar 1970. Nú set ég á pappírinn svolítinn brag, þá svifinn er þorri og lengja fer dag, þótt fönn sé á grundu og færðin ei greið, til fundar við góðvini er stutt sérhver leið. Ég heilsa þér, æska, ég ann þér sem fyrr, því opnar þér standa æ gleðinnar dyr. Og ykkur ég heilsa, með áranna fjöld, og upp skal nú rifja svo margt hér í kvöld. Og við, sem að fæddumst á öndverðri öld, nú atburðum hlöðum á minningaspjöld. Á dimmasta vetri var dálítið kalt, en dásemdir sumarsins bættu það allt. Við munum, er sólkringlan seig ckki' í mar um sólstöðuleytið. Við kusum ei par að leggjast til hvíldar frá ljósbjarma þeim. Þá ljómaði fegurð um gjörvallan heim. Þá upp fyrir gluggann var öldungis fennt, við undum í næði við bóklega mennt. Þá sátum við inni við sögur og ljóð og sváfum í rökkrinu. Kyrrlát var þjóð. 54 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.