Goðasteinn - 01.03.1970, Side 76

Goðasteinn - 01.03.1970, Side 76
og algengt var á húsum undir Eyjafjöllum. Þrep og upphækkun var innantil í gólfi gömlu skemmunnar, og er mér ekki ljóst, hvað því réði, en eins lét ég þessu vera háttað við endurbyggingu hennar. Einn forn og merkur hlutur fylgdi skemmunni, að sönnu illa leikinn af ellisliti. Var það kista með augljósum svip 17. aldar. Hún er víðari við botn en op og hefur fyrir eina tíð verið máluð vel og með skreyttum járnspöngum, er för sjást eftir. Hún er með handröðum við gafla. Gerð hennar er sambærileg við frúarkistima frá Teigi, sem um er fjallað í öðru hefti Goðasteins 1966. I þess- ari kistu geymdi langafi minn, Tómas Sigurðsson í Varmahlíð, matföng cg brennivín og muni sína ýmsa. Kistan er áfram á sín- um gamla stað í skemmunni, fram við þil vestanmegin. Skemman hcfur nú fengið nýtt hlutverk, sem safnhús, og bætti úr brýnni þörf byggðasafnsins fyrir aukið húsrúm. Sjálf hefur hún mikið safnlegt gildi og sómir sér að öllu vel, einn síðasti fulltrúi gamalla torfhúsa undir Eyjafjöllum og þó lengra sé leitað. Sá er líka einn kostur hennar, að hún veitir tök á að sýna gamla bús- hluti í sínu rétta umhverfi. Ekki hefur byggðasafnið í Skógum fengið aðra betri happa- fengi í góðlega 20 ára sögu sinni en Varmahlíðarskemmuna og vonandi ber það gæfu til að varðveita hana vel og lengi. Ath.: Hugsanlegt er, að smiðjuhurðin gamla frá Skarðshlíð sé frá Steina- kirkju. Byggðasafnið íSkógum á cina fjöl úr altari Steinakirkju, scm cr sömu .gerðar (barok). 74 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.