Goðasteinn - 01.03.1970, Page 88

Goðasteinn - 01.03.1970, Page 88
Frá huldufnlki í Skógum Ingimundardalur nefnist dalverpið sunnan við Ingimund í Ytri- Skógum, uppi undir fjallsbrúninni. Austan við hann er Fauska- dalur, upp af austanverðu Réttarstykki, sem svo nefnist. Ef Fauskadalur var sleginn, átti allt hey að fjúka af honum. Þorbjörg Bjarnadóttir frá Ásólfsskála sagði mér það, að einu sinni hefði hún og Skógastúlkurnar verið að koma frá Eystri- Skógurn í glaða tunglsljósi. Þegar þær komu á skriðuna, sem Réttarlækur rann eftir, sá Sigurbjörg Oddsdóttir mann á rauð- skjóttum hesti ríða upp Þorkelstún, þar sem Skógaskóli stendur nú, og upp í Réttargil. Hinar stúlkurnar sáu hann ekki. Sigur- björg var skyggn og varð oft óttaslegin, þegar hún sá það, sem aðrir sáu ckki. Gyðríður kona Odds í Skógum var máttlaus í fjölda mörg ár. Því var um kennt, að Oddur rcif baðstofu sína og sundraði tótt- inni. Stór steinn var í gaflaðinu. Odd dreymdi konu, sem bað hann að cyðileggja ekki húsið sitt, sem væri stóri steinninn í gaflaðinu. Oddur sinnti því ekki og skömmu seinna missti kona hans heilsuna. Huklukonur Bjarni Bjarnason bóndi í Indriðakoti undir Eyjafjöllum var vinnudrengur á Langsstöðum í Flóa um 1880. Þar í túninu voru hólar, sem huldufólk bjó í. Einu sinni kom Bjarni út úr fjósinu og sá til ferða stúlku, sem hljóp við fót frá einum hólnum og heim að bænum. Nam hún aðeins staðar við annan skemmu- kampinn, en skcmman var austast í bæjarröndinni. Stúlkan var þokkalega búin, í dökku pilsi og dökkri peysu og köflóttri ein- skeftusvuntu. Hún fór brátt í hvarf við skemmuna. Stökk Bjarni þá upp á vindgarðinn framan við fjósið. Átti hann þá að sjá stúlkuna að nýju, en hana var hvergi að sjá. Það þótti Bjarna undarlegt. Þá hélt hann, að þetta væri stúlka af næsta bæ og 86 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.