Úrval - 01.04.1977, Blaðsíða 13
GEFÐU GAUM.... 11
tengslum við líkkrufningu benda til
þess, að einn maður af hverjum
fimm, sem náð hefur fimmtugsaldri,
þjáist af krabbameini í blöðruháls-
kirtli á byrjunarstigi, og krabba-
meinskenndar frumubreytingar í
blöðruhálskirtli finnast í helmingi
allra karlmanna, sem náð hafa
sjðtugsaldri.
Þar eð blöðruhálskirtillinn umlyk-
ur háls þvagblöðrunnar, þar sem hún
tengist þvagblöðrunni, leiðslu, sem
flytur þvagið, þá eru flest slík
einkenni tengd breytingu á þvagláts-
venjum. Þar á meðal má nefna
skyndilega þörf á að fara fram úr að
nóttu til til þess að kasta af sér þvagi,
erfiðleika í upphafi þvagláts, kraft-
litla þvagbunu, sviðakennd við
þvaglát, þvagleka að þvagláti loknu
og stundum minni háttar verk á
lífbeins- eða endaþarmssvæðinu. Slík
sjúkdómseinkenni kunna að vera
breytileg og þau geta orsakast af
völdum annarra kvilla en krabba-
meins, svo sem bólgu, sýkingar,
blöðrukýlis eða góðkynjaðs æxlis, en
samt ættu breytingar á þvagláts-
venjum alltaf að verða til þess, að
fólk fari í læknisskoðun. Þar að auki
er það ráðlegt fyrir karlmenn, sem
náð hafa fimmtugsaldri, að fara í
blöðrukirtilsrannsókn einu sinni á
ári, því að krabbamein í blöðru-
hálskirtli getur breiðst út, áður en
einkenni þess koma í ljós.
Lungnakrabbamein. Áætlað er, að
í ár mun um 98.000 Bandaríkjamenn
fá lungnakrabbamein og að um
89.000 þeirra muni deyja af völdum
þess. En samt getur verið um að ræða
mjög greinileg aðvörunarmerki um
líkur á lungnakrabbameini í uppsigl-
ingu.
Þessu til sönnunar dregur dr.
William G. Cahan við Memorial
Sloan-Kettering krabbameinsmið-
stöðina í New Yorkborg fram kort 42
ára gamallar húsmóður, sem reykir
mikið og var nýlega skorin upp við
lungnakrabbameini og æxli fjarlægt
úr lunga hennar. ,,Hún fékk fyrstu
aðvörunina frá líkama sínum fyrir
næstum þrem árum. Áður hafði hún
vaknað hóstandi á hverjum morgni
og hóstaði sínum venjulega þurra,
þráláta ,,reykingahósta,” en þá fór
hún skyndilega að hósta upp óvenju-
lega miklu slími. Fyrst hélt hún, að
það væri aðeins um að ræða sýkingu í
kinnbeinaholum og nefkvef í kjölfar
þess. Hún skeytti ekkert um þessa
aðvörun og hélt árfam að reykja
hjálfan þriðja pakka af vindlingum á
dag.
Dr. Cahan segir enn fremur um
tilfelli þetta: , ,Líklega hefur þessi
breyting frá þurrum hósta til slím-
uppgangs verið aðvörunarmerki um
breytingu á slímhúðinni í lungnapíp-
um hennar. Sumar slíkar breytingar
stöðvast, ef hætt er að reykja, eða það
verður jafnvel um bata að ræða, en
aðrar halda áfram og enda með
krabbamein. Það kemur of oft fyrir,
að einkennin eru rangtúlkuð og álitin
vera langvinnt, góðkynjað ástand, og
þá er því leyft að þróast, þangað til of