Úrval - 01.04.1977, Blaðsíða 15
GEFÐU GAUM....
13
meinsfélagsins væri samt hægt að
bjarga þrem af hverjum fjórum
þessara sjúklinga með nægilega
skjótri sjúkdómsgreiningu og læknis-
meðferð. Þið ættuð að skýra lækni
ykkar tafarlaust frá eftirfarandi ein
kennum: Breytingu á hægðavenjum,
tilvist blóðs eða slíms í hægðum og
óvenjulegum krampakenndum þján-
ingum í neðri hluta kviðarhols.
Legkrabbam ein. Þessi tegund
krabbameins verður 11.000 konum
að bana árlega í Bandaríkjunum. En
samt gefur llkaminn oft tímanleg
aðvörunarmerki, sé um legkrabba-
mein að ræða, þ.e. óeðlilegar blæð-
ingar. Besta ráðið er að láta lækni
ákvarða, hvað þetta táknar og að gera
það nógu tímanlega, meðan góður
möguleiki er á lækningu, sé um
krabbamein að ræða.
Krabbamein myndast nokkuð oft í
leghálsi, og enda þótt líkaminn gefi
oft ekki nein aðvörunarmerki um
leghálskrabbamein, er til allrar
hamingju hægt að finna slíkt krabba-
mein nógu fljótt til þess að gera
fullkomna lækningu mögulega í
flestum tilfellum. Slíkt er gert með
,,Pap-prófuninni,” en slíka prófun
ætti að gera á hverri konu við hina
árlegu skoðun á henni.
Brjóstkrabbamein. Einnig er hægt
að stöðva þennan sjúkdóm með því
að vera á varðbergi gagnvart honum
og með reglulegri sjálfsskoðun. Á
meðal þeirra einkenna, sem konur
ættu að vera á verði gegn, má nefna:
Hvers konar ber eða þykkildi í
brjóstum, breytingu á lögun brjósta
og útferð úr geirvörtum. Þessi
einkenni geta að vísu orsakast af öðru
en krabbameini, en verði kona vör
við slík einkenni, ætti hún samt að
láta lækni skoða sig tafarlaust.
Krabbamein er ekki eini stór-
hærmlegi sjúkdómurinn, sem líkam-
inn gefur tímanlega aðvörunarmerki
um. Sérfræðingar í hjartasjúkdómum
hafa vitað það árum saman, að
líkaminn gefur ýmis óljós aðvömnar-
merki um tilvist hjartasjúkdóma
vikum eða jafnvel mánuðum áður en
þeir hafa verið greindir. Og sé
sjúklingurinn á varðbergi gegn
slíkum aðvömnum, gemr hann gert
ráðstafanir til þess að fyrirbyggja
þóun sjúkdómsins eða komið í veg
fyrir hann. Dr. Irvine H. Page,
hjartasérfræðingur við Cleveland-
hjartasjúkdómamiðstöðina, sem hef-
ur rannsakað reynslu hundraða
sjúklingaíþessu efni, segir, að um sé
að ræða ferns konar aðvömnarmerki
um, að hjartasjúkdómur sé í þann
veginn að myndast eða í uppsiglingu,
og em þau sem hér segir: 1.
Tilfinning um, að á manni hvíli
stöðugt álag, bæði hvað starf og
einkalíf snertir. 2. Stigmögnun.
hinna sígildu áhættuþátta hjartasjúk-
dóma, svo sem of mikils líkamsþunga
og hás blóðþrýstings. 3. Óvenjuleg
óþægindi fyrir brjósti, svo sem , ,sým-
meltingarleysi,” óljós verkur og
uppþemba. 4. Yfírþyrmandi ör-
þreyta. Dr. Page hefur þetta að segja