Úrval - 01.04.1977, Page 24
22
ÚRVAL
cZÁT tjeimi lækna visiqdanija
BLÖÐPRÖF TIL AÐ FINNA
AfengissjOklinga.
Vísindamenn við læknaskóla þann
í New York, sem kenndur er við
Sínaífjall, hafa í samvinnu við
starfsbræður sína á Bronx Veterans
Administration spítalanum fundið
upp aðferð til að fínna með
blóðprófi, hverjir séu áfengissjúkl-
ingar. Þetta kom sem óvænt
hliðaruppgötvun við rannsóknir
þeirra á næringu og alkóhóli í
bavíönum. Talið er, að þessi aðferð
muni leiða til nýrra og bættra
lækningaaðferða fyrir þá, sem þjást af
drykkjusýki.
Þar sem blóðefni þau, er prófíð
mælir, halda áfram að vera til staðar í
blóðinu jafnvel eftir að áfengið sem
slíkt er ekki lengur í því, er hægt að
fínna áfengissýki hjá fólki jafnvel
þótt það sé hætt að drekka fyrir
löngu. Prófíð er í því fólgið að fínna
hlutfafl tveggja amínósýra, alfa
amino-n-butric sým og leucine, í
blóðplasmanum. Þótt prófíð sé enn
talið á tilraunastigi, eru vísinda-
mennirnir þegar farnir að nota það
sem grundvöll þróunar aðferða við
endurhæfingu drykkjusjúkra.
Dr. Frank A. Seixas, læknisfræði-
legur framkvæmdastjóri rxkisnefndar
um áfengissýki í Bandaríkjunum
hefur kallað prófíð , ,snilldarlega
uppfínningu, sem hefur ómælanlega
þýðingu.” Það er talið mikilvægt
skref til að kynnast orsökum ýmissa
þátta, sem enn er lítið sem ekkert
vitað um, þar á meðal hvers vegna
margir kófdrykkjumenn deyja af
skorpulifur og heilaskemmdum, en
aðrir geta dmkkið við sleitur svo
ámm skiptir án þess að merkt verði
að þeir verði fyrir neinum skaða á
lifur eða heila.
New YorkTimes.
ÞEGAR BROT VILL EKKI GRÖS.
Sjúklingurinn hafði þjáðst af
öklabroti í tvö ár. Læknarnir Carl T.
Brighton og Zachary B. Friedenberg,
báðir skurðlæknar við háskólaspítal-
ann í Pennsylvaniu, gerðu þá
nokkuð, sem aldrei hafði verið gert
fyrr: Þeir komu rafskautum fyrir sitt
hvomm megin við brotið og hleypm
á það lágum jafnstraum. Öklinn greri
til fulls á níu vikum.
Síðan þetta nýmæli varð fyrir sex
ámm, hafa Dr. Brighton og aðstoð-
armenn hann beitt 111 sjúklinga
þessari aðferð, en allir þjáðust þeir af
bromm, sem ekki vildu gróa. í 70 af
hverjum hundrað tilvikum fékkst
fullkomin lækning. Þar að auki hafa
níu rannsóknarhópar frá öðmm
stöðum heimsótt Pennsylvaniuhá-
skólann til þess að læra aðferðina,
sem þeir hafa síðan tekið upp í sínum
heimabyggðum. Fyrir þá, sem hafa