Úrval - 01.04.1977, Side 30

Úrval - 01.04.1977, Side 30
28 URVAL tilraunirnar sem gerðar hafa verið sýni að mögulegt sé að lengja mannsævina um 30-50 ár. Við þurfum að leita aðferðanna til að lengja mannsævina í sjálfri elliþróuninni, segir Frolkis, því að ellin felur ekki aðeins í sér slokknun líkamsstarfseminnar og efnabreyt- inganna, heldur einnig aðlögunarað- ferðir sem gera þetta ferli auðveldara. Og því meiri aðlögun sem um er að ræða, þeim mun meiri möguleika hefur viðkomandi á að ná háum aldri. Nánari rannsóknir á þessu fyrirbæri gætu leitt til þess að við fyndum nýjar aðferðir til að hafa áhrif á líkama á hrö'rnunarskeiði. Sem dæmi má nefna tilraun sem framkvæmd var af vísindamönnum Rannsóknarstofnunar tilraunalæknis- fræði í Leningrad og Lífeðlisfræði- stofnunarinnar í Puskxnó, fétt hjá Moskvu. I ljós kom, að ef ákveðinni sýrutegund (succinic acid), sem er þáttur í eðlilegri efnaskiptingu líkamans, var sprautað í líkama á hrörnunarstigi var hægt að hægja á hrörnunarferlinu, hafajákvæð áhrif á efnaskiptin og yfirleitt hressa stórlega upp á viðkomandi. ,,Ekki alls fyrir löngu” — segir prófessor Frolkis, „gerðum við merka uppgötvun sem bendir til beinna tengsla milli starfsemi erfðaeigin- leika, frumuhýðis og eggjahvítuefna- skipta. Þegar líkaminn eldist breytast þessi tengsl, áður en hámarki ferlisins er náð. Þessi uppgötvun hefur gefið okkur góða von um að með því að virka á frumuhýðið gemm við einnig virkað á hrörnunarhraða manns- líkamans.” ERU MÓTVIRKANDI SÝRUR ALLRA MEINA BÓT? Meðal þeirra kenninga sem uppi em um hrörnun og aðferðir til að sporna gegn henni ætmm við einnig að nefna kenningu vísindamannsins Nikolaj Emanuel. Hann telur að hrörnunarferlið stafi af því að líkaminn hafi orðið fyrir ýmisskonar skaða meðan hann var í fullu fjöri. Má þar nefna ýms efna- og eðlisfræðileg áhrif eins og geisla- virkni, hitabreytingar, eimrefna- mengun osfrv. Um leið kemur líkaminn sér upp birgðum af vissum áreitnum eindum, sem á ensku nefnast ,,free radicals”. Emanuel telur að með hæfíleika sínum til að mynda efnafræðileg viðbrögð með hvaða sameindum sem vera skal og að breyta ferli sumra efnabreytinga hafí þessar eindir skaðleg áhrif á erfðafræðieinkenni fmmunnar og séu að öllum líkindum valdar að því að hrörnunin verður hraðari og sjúk- dómar myndast. Ef svo er, getum við haft áhrif á þessar áreitnu eindir? Vísindamenn stinga upp á að þær verði ónýttar og þeim breytt í form sem ekki em mannslíkamanum jafn skaðleg. í þessum tilgangi eigi að dæla mótvirkandi sýmm inn í manns- líkamann og verða þær einskonar „gildmr” fyrir eindirnar.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.