Úrval - 01.04.1977, Qupperneq 45
FJÁRHÆTTUSPIL VERÐA LÖGLEG
43
var rekstur hinna 13 fyrstu banda-
rísku nýlendna að miklu leyti
fjármagnaður af happdrættum (sem
áttu að bakhjörlum svo mikilsmetna
menn sem George Washington,
Benjamín Franklin og Thomas
Jefferson).
Samkvæmt ofangreindri ríkisrann-
sókn á fjárhættuspilastarfesmi í
Bandaríkjunum, álíta fleiri en 80%
Bandaríkjamanna að ekkert sé at-
hugavert við fjárhættuspil í einhverri
mynd og næstum 2/3 hlutar þjóð-
arinnar veðja á eitt eða annað. Á
hverju ári koma yfir 9 milljónir
manna alls staðar að úr heiminum til
Las Vegas tii þess að spila fjárhættu-
spil. Sumir þeirra treysta á eitthvert
,,kerfi”, en aðrir fara eftir hugdett-
um eða draumum. Það eru ekki svo
fáir, sem grípa jafnvel til bænarinnar.
Og sumir halda áfram að spila,
jafnvel þótt þeir þurfi að biðja
forráðamenn spilavítanna um að lána
eða gefa sér fyrir farmiða með
langferðabíl heim til sín. í árslok,
þegar gerð hefur verið grein fyrir
hverjum spilapening, kemur árang-
urinn í ljós, 1.2 milljarða dollara
heildarvelta spilavítanna í Nevada-
fylki. Helmingur rekstrarútgjalda
fylkisins fæst með sköttum á
fjárhættuspilastarfsemi. íbúar fylk-
isins greiða enga tekjuskatta né
erfðaskatta.
Er hægt að flytja þetta Nevada-
sæluástand út til annarra fylkja?
Líklega er svo ekki. Þar eð það vantar
annarsstaðar hinn efnahagslega
grundvöll, sem hefur tekið áratugi að
skapa í Nevadafylki, er ólíklegt, að
nokkur staður geti keppt við
aðdráttarafl það, sem Las Vegas
hefur, enda þótt Atlantic City muni
vissulega reyna sllkt, enda geta
forráðamenn hennar kannske lært af
sumum þeim mistökum, sem gerð
hafa verið í Las Vegas, þessari Mekka
spilavítanna.
Alfrjáls spilavíti hafa verið rekin í
Nevadafylki í um 45 ár, en það er ekki
fyrr en aiveg nýlega, að harðduglegri
fylkisnefnd hefur tekist að losa
atvinnugrein þessa undan algerum
yflrráðum Mafíunnar, sem engum
duldust. Því er jafnvel enn svo farið,
að lokinni mjög ýtarlegri rannsókn og
,,síun”, að álitið er, a.m.k. 5 af
hinum 12 stóru spilavítum hafi
tengsl við skipulagða glæpastarfsemi.
Ralph Salerno, fyrrverandi yfirmaður
svikastarfsemisrannsóknarliðs New
Yorkborgarlögreglunnar, hefúr þetta
að segja um þetta atriði: ,,Ég veit
ekki um nein lög ne dómsvald, sem
geti hindrað glæpaforingja í að eiga
spilavíti. Hvers vegna ætti þeim þá að
takast að halda þeim frá Atlantic
City?” Fyrrverandi háttsettur starfs-
maður Mafíunnar, sem nýtur nú
lögregluverndar, er á sama máli.
,,Það er engin leið til þess að halda
Mafíunni utan fjárhættuspilastarf-
seminnar,” segirhann. „Hverjir ætla
að stjórna starfseminni? Hverjir ætla
að sjá um peningahliðina? Það er
aðeins Mafían, sem hefur nægilegt
fjármagn til þess að reka spilavíti.