Úrval - 01.04.1977, Síða 52

Úrval - 01.04.1977, Síða 52
50 ÚRVAL hugmyndafræði hafí gert mikið strandhögg í hversdagslíf þeirra. Ef á að halda upp á brúðkaup til dæmis, eru veiðikvótar og þess háttar látið lönd og leið og haldin hátíð í viku; einn helgidagur annars staðar í Rúmeníu getur hæglega orðið að þrem fjórum í þessu smásamfélagi. Gestrisin fjölskylda bauð upp á hádegismat á heimili sínu, prýddu helgimyndum. Því næst fórum við í könnunarferð um Leteaey, sem er 1335 ferkílómetrar að stærð. Áður en við höfðum gengið kílómeters leið, varð á vegi okkar skógur, sem var svo þéttur og ógengur, að hann hlaut að vera ævaforn frumskógur. ,,En hann er bara tveggja alda,” sagði Alexandru. ,,Þetta er yngsta eðlilegt skógsvæði í Evrópu.” Allar venjulegar trjátegundir Evrópu: Eik, beyki, ösp, álmur og askur voru þarna til staðar, og þar að auki voru þessi tré næstum kaffærð í vafnings- jurtum frá miðjarðarhafslöndum og af hitabeltissvæðunum — hafa sennilega borist með farfuglum hvaðanæva að. ,,Hérna sérðu hvers vegna ég kalla svæðið rannsóknar- stofu,” sagði Alexandru. ,,Við getum fylgst með vexti skógarins í hvívetna. Við getum séð hvernig nakin jörðin byggist, fyrst plöntum, síðan dýrum og fuglum — á innan við öld getur nakinn óshólmi breyst í frjósaman skóg, sem ólgar af lífi. Og það var satt. Hvar sem við brutumst fram gegnum vafnings- plönturnar, iðaði allt af lífi. Litlir, grænir froskar stukku um, glansandi slöngur runnu hljóðlaust ofan í vatnið, dádýr skutust um rjóðrin. Við sáum líka hinn rúmenska lupi de stuf, reyrúlfinn, sem hefur átt svo furðulega auðvelt með að tileinka sér þessa votu veröld. Ef flóð kemur, klifrar hann bara upp í tré. Dagurinn var fullur af söng trjátítanna og kvaki fuglanna. Þetta var eins og að vera fyrsti maðurinn á jörðinni. Ég var þess vegna dálítið angurvær, þegar við héldum aftur til sveita- þorpsins, en þar vorum við fljótlega hresstir við. Gestgjafar okkar, gamli veiðimaðurinn Dumitru Dumitrof og fjölskylda hans hafði lagt glæsilega á borð fyrir okkur á sólpalli undir skugga vínviðarins. Þar var okkur borið heimabruggað vín, heimagerð- ur ostur, nýjar vatnsmelónur, hin sérstaka rúmenska hafrasúpa ■mamaliga og síðast, en ekki síst, fiskurinn, sem við höfðum veitt, sem fyrst hafði verið látinn liggja í sterkri hvítlaukssósu og síðan borinn fram í vel kryddaðri súpu. Ég spurði Dumitrof, hvort hann hefði aldrei íhugað að setjast annars staðar að. ,,Aldrei,” svaraði hann með áherslu. ,,Við þetta fljót, undir þessum himni, er heimkynni mitt.” En flóðin? Gerðu þau ekki tilveruna ótrygga? Hann hló, svo undir tók, og benti á nýtt flóðmerki á húsveggn- um. ,,Við lærum að lifa þau af eins og öll önnur kvikindi hér í óshólmunum.” Rökkrið var að leggjast yfir óshólm-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.