Úrval - 01.04.1977, Qupperneq 100
98
URVAL
hvað eftir annað vikið að því sama:
„Þegar ég vinn meistaratitilinn ætla
ég að fara í gömlu gallabuxurnar
mínar og fá mér gamlan hatt og láta
mer vaxa skegg og ganga eftir
gömlum sveitastíg, þar sem enginn
þekkir mig, þangað til ég fínn litla,
fallega tæfu sert) veit ekki hver ég er
en elskar mig bara fyrir það sem ég
er. Þá fer ég með hana heim í 250
þúsund dollara húsið mitt og sýni
henni alla Cadillaccana mína og
innilaugina ef það rignir og segi við
hana; „Þetta allt átt þú, elskan, af
því þú elskar mig fyrir það sem ég
er.”
Raunveruleikinn varð andstæðan
við drauminn. Innan fárra mánaða
frá því að Cassius vann titilinn
afneitaði hann kristni, sem kostaði
tímabundið ósamkomulag við fíöl-
skyldu hans, gekk að eiga sér eldri
konu, sem átti barn frá fyrra
hjónabandi og tilkynnti, að nafn
hans væri nú Muhammed Ali. Sá sem
gaf honum það, var hæstvirtur Elijah
Muhammad, sendiboði Allah og
leiðtogi hinna týndu og fundnu
þjóðar Islams, hópur, sem blöðin
kölluðu „Black Muslims.”
Fyrir þá, sem dáðu Cassius Clay
ólympíuleikanna í Róm var þessi nýji
Muhammad Ali ráðgáta og svik,
„vanþakklæti” við það líf, sem hafði
gert frama hans mögulegan. En
múhammeðstrúarprédikarinn, sem
hafði upprunalega ,,veitt” hinn 17
ára gamla Cassius Clay af götuhorni
með orðum sínum um „bláeygða
djöfulinn” hafði beitt agni, sem
hafði mikla þýðingu fyrir unga
hnefaleikarann. Þegar í moskuna
kom, heillaðist Cassius af hreinlæti
múhammeðstrúarinnar, af ná-
kvæmni þeirra í mataræði, hreinleika
síðklæddu kvennanna og því bræðra-
lagi, sem hann fann 1 hópi hljóðlátra
fíölskyldumanna.
Það var auðvelt fyrir hnefaleikara 1
þjálfun að fylgja reglum múhamm-
eðstrúarinnar. Hann mátti ekki neita
áfengis né reykja, né svalla á neinn
hátt. Þar að auki var boðskapurinn
um yfirburði svarta hörundsins
smyrsl á þau sálarsár hans, sem
stöfuðu a'f öryggisleysi. Hann hafði
aldrei gleymt svarta prédikaranum,
sem hafði skipað honum að vera
„eilíflega þakklátur” hvítu, kristnu
milljónamæringunum. Nú heyrði
hann prédikara Black Muslims
(svörtu múhammeðstrúarmannanna)
tala með fyrirlitningu um „anda og
drauga” hans fyrri trúar sem brellu
hvíta mannsins til þess að hneppa
svarta manninn í þrældóm með
fyrirheiti um hlutdeild í himnasæl-
unni, meðan hann veslaðist smám
saman upp í þessi lífi. Múhammeðs-
trúarprédikararnir sögðu fylgjendum
sínum að neyta lífsins, meðan það
stæði.
Ali varð ofsatrúarmaður, með
ákefð hins frelsaða. Hann sagði að
það~ hefðu verið kenningar hins
hæstvirta Elijah, sem gerðu honum
kleift að vinna heimsmeistaratitilinn.
Og sem heimsmeistari yrði hann að