Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Blaðsíða 36
H
ás
kó
la
ke
nn
ar
in
n
Vill tileinka sér sanngirni,
húmor og gleði í starfi
Texti og myndir: Sigríður Elín Ásmundsdóttir
Af hverju hjúkrunarfræði?
Þegar ég vann sem sjúkraliðið þá upplifði ég að geta
ekki gert nóg fyrir mína sjúklinga og þess vegna hélt ég
áfram að mennta mig. Ég vildi geta veitt betri hjúkrun
óháð þeim sem ég vann með.
Af hverju kennsla frekar en klíník?
Ég vinn bæði í Háskólanum og á Landspítalanum. Þegar
ég fór að kenna þá áttaði ég mig á hve mikil hjúkrun felst
í því að kenna hjúkrun, að geta haft jákvæð áhrif vonandi
á alla þessa flottu einstaklinga sem velja hjúkrun sem
sýna fræðigrein. Annars eru kennsla og klíník svo tengd,
þetta er eins og að reyna að aðskilja hjartslátt og púls,
bæði betra og raunverulega það sama, bara skoðað á
ólíkum stöðum.
Hver er þín sérgrein?
Bráðahjúkrun í grunninn en þar fór ég að skoða þá sem
komu inn vegna mjaðmabrots og þá beindist áhuginn
að eldri einstaklingum. Þannig að ætli mín sérgrein í
dag sé ekki bráðabæklunarbrot aldraðra.
Hvað heillaði þig við þá sérgrein og varð til
þess að þú valdir hana frekar en aðra?
Að fá þessa sjúklinga inn á bráðamóttöku, aldraða
einstaklinga sem í grunninn var erfitt að verkjastilla,
því mesta verkjastilling kemur með viðgerð á broti. Þeir
voru áskorun og flókið að sinna þeim því ekki er auðvelt
að hreyfa þá. Ég hugleiddi hvernig þeim reiddi af eftir
útskrift af því bæklunarlæknar eru góðir í að gera við
þessi brot en samt er dánartíðni þessa hóps mjög há.
Íslensk rannsókn hefur sýnt að 36% karla deyja innan
árs frá broti og 21% kvenna. Mig langaði að vita hvers
vegna og hvað væri hægt að gera betur. Þess vegna er
ég enn þá að skoða þennan hóp.
Þyrstir þig í fleiri háskólagráður, langar þig í
meira nám?
Ég er reyndar í námi, er að klára kennslufræði. Sjáum
hvort ég láti ekki þar staðar numið en góður maður sem
ég þekki sagði alltaf sá lifir sem lærir. Líklega mun ég
aldrei að læra, spurningin er kannski frekar hvort það
verður hefðbundið nám.
Ef þú hefðir ekki lært hjúkrunarfræði hvað
hefðir þú þá lært?
Þetta er erfið spurning. Ég ætlaði að vera iðjuþjálfi
þegar ég var í grunnskóla, sjúkraþjálfun hefði líka geta
komið til greina.
Hvaða fög kennir þú?
Ég held utan um námskeið í skurðlækningarfræði
sem er kennt af skurðlæknum. Ég held líka utan um
hjúkrun aðgerðarsjúklinga og kenni þar, er með einn
fyrirlestur. Svo kem ég inn í mörg námskeið. Kenni
um stoðkerfið í almennri hjúkrun og kenni þar líka
um lyfjaútreikinga. Ég kenni nemum að setja upp
æðalegg og blöndun sýklalyfja í færinstofunni. Ég
kenni í öldrunarhjúkrun; bæði sem sérfræðikennari
í verknámi og einnig fyrirlestur um mjaðmabrot
og sarcopeniu. Ég kenni einnig í meistaranáminu í
aðferðarfræði, tölfræði og í skurðframhaldsnáminu um
næringu skurðsjúklinga. Svo kenni ég grunnnemum
við matvæla- og næringarfræðideild um hlutverk
hjúkrunarfræðinga og meistarnemum hvernig sé
hægt að nýta áhugahvetjandi samtal þegar taka þarf
viðtal við skjólstæðing. Að lokum er ég annar af tveim
umsjónarkennurum um þverfræðilega samvinnu
heilbrigðisstétta sem er skyldunámskeið fyrir allar
nemendur á heilbrigðisvísindasviði. Þannig að ég kem
víða við í kennslu.
Hvað er það besta við kennarastarfið?
Að kynnast öllum þessum frábæru einstaklingum sem
eru að mennta sig. Að geta vonandi aukið áhuga og gert
efnið skemmtilegt og spennandi. Þegar maður upplifir
að nemendur sem höfðu ekki trú á sér; að þeir gætu lært
efnið, koma til manns og segja: „Sigrún þetta gekk upp
hjá mér, ég gat þetta.“ Það er gefandi að finna að maður
geri gagn.
Háskólakennarinn Sigrún Sunna Skúladóttir
Nafn: Sigrún Sunna Skúladóttir.
Menntun: Sjúkraliði, hjúkrunarfræðingur, diplóma í bráðahjúkrun,
meistaranám í hjúkrun og doktorspróf í heilbrigðisvísindum.
Starfsheiti: Lektor við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands.