Edda - 01.06.1958, Page 86

Edda - 01.06.1958, Page 86
sína í Borgarfirði. Auk ])ess átt mikinn þátt í fjársöfnun til Eimskipafélagsins í Vestur- keimi og komið heim á aðalfundi félags- ins. Þótti íslenzku stjórninni nú bera vel í veiði, að fá Árna Eggertsson til að vera sendi- fulltrúa landsins hjá stjórninni í Washington og standa fyrir aðdráttum og erindisrekstri Islendinga vestur þar. Tók Árni vel þessum tilmælum, og var um stund athafnamikill og farsæll trúnaðarmaður Islands hjá Banda- ríkjastjórn. Lauk starfi hans, þegar friður komst á, og íslenzk verzlun beindist sem fyrr til landa í Norðurálfu en ekki til Ameríku. En meðan stríðið stóð, voru þessi skipti þýðingar- mikil. Má Arni Eggertsson með nokkrum rétti kallast fyrsti sendiherra íslendinga, þótt ekki væri það nafn helgað með löggjöf, heldur starfinu einu saman. Eftir að fyrra stríðinu lauk, stofnuðu ís- lendingar vestanhafs Þjóðræknisfélag sitt, og var það voldug stofnun og er það enn. Má einna helzt líkja því þjóðernisfélagi við Hið íslenzka bókmenntafélag á dögum Jóns Sig- urðssonar. Jón gerði Bókmenntafélagið um sína daga að andlegu íslenzku ríki með nokkr- um fjárráðum. Stjórn landsins var þá að öðru leyti í höndum Dana, en Bókmenntafélagið gat afkastað furðumiklu verki til þjóðlegrar við- reisnar, af því að það var sjálfstætt og undir íslenzkri stjórn. Á sama hátt hefir Þjóðræknis- félag Islendinga í Vesturheimi starfað við hlið kirkjufélaganna, tákn íslenzkrar sameiningar í Ameríku, og verður starf þess aldrei full- þakkað. Reynt var um þetta leyti að stofna Þjóðræknisfélag í Reykjavík. Dafnaði það nokkuð í fyrstu, en fékk ekki nægan ajmennan stuðning og lognaðist útaf, án þess að hafa myndað nokkra sögu. Fram að þessum tímum hafði ég lítil kynni haft af Vestur-íslendingum, nema helzt í sam- ]>andi við störf Árna Eggertssonar, sem fyrr er að vikið. Ég var kosinn til þings vorið 1922 og starfaði þá að nýrri flokkamyndun, sem sneri sér að framfaramálum landsins, sem aðalatriði, en lét deilumálin við Dani híða sinnar stundar. Á þingi 1926 ])eitti ég mér fyrir nýrri hugmynd, sem var mjög þýðingar- mikil í skiptum og kynnum íslendinga austan hafs og vestan. Bar ég þá með fleiri þing- mönnum fram tillögu um það, að haldin skyldi allsherjarþjóðhátíð á Þingvöllum 1930, til að minnast 1000 ára afmælis Alþingis. Var kosin nefnd til að standa fyrir þessari framkvæmd. Voru í henni fulltrúar allra íslenzkra flokka. Hafði nefndin 4 ár til að undirbúa hina miklu ])jóðhátíð. Þessi hugmynd var mjög rædd í ldöðum og málfundum Vestur-íslendinga, og má segja, að eldur áhugans fyrir heimför á þessa hátíð, hafi logað um alla Ameríku, hvar sem Islendingar hjuggu. Störfuðu tvær nefndir að heimfararmálum vestanhafs, og komu full- trúar þeirra við og við til Reykjavíkur til sam- starfs við hátíðarnefndina, sem fyrr er að vik- ið. Á þessum árum komu þeir séra Rögnvald- ur Pétursson, Árni Eggertsson og Ásmundur Jóhannesson mörgum sinnum heim til íslands til að undirbúa heimfararmálin. Mikil gæfa fylgdi þessum áhugastörfum Vestur-íslend- inga. Nefndin í Reykjavík gerði ráð fyrir hátíðahöldum á Þingvöllum í þrjá daga, og hafði mikinn viðbúnað með vegagerðir, húsa- byggingar og aðdrátt tjalda til hátíðarinnar. 1 Reykjavík voru tvö stórhýsi, Landsspítalinn og Elliheimilið Grund fullgerð en ekki búin húsgögnum. Var Vestmönnum búin vist í þess- um húsakynnum, þeim sem ekki bjuggu hjá vinum og vandamönnum meðan þeir voru í Reykjavík. Forráðamönnum hátíðarinnar var ljóst, að þeir áttu um þessa framkvæmd mest undir veðri og vindi. Ef veður væri þurrt og 84 E D D A
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232
Page 233
Page 234
Page 235
Page 236
Page 237
Page 238
Page 239
Page 240
Page 241
Page 242
Page 243
Page 244

x

Edda

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Edda
https://timarit.is/publication/1933

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.