Læknaneminn - 01.04.2016, Page 10
Á
vö
rp
o
g
an
ná
la
r
10
Þriðja starfsár Bjargráðs
hefur verið viðburðaríkt
og skemmtilegt. Í ár var
í fyrsta sinn kjörin stjórn
með hefðbundnum hætti
þar sem fulltrúar frá
öllum árum sitja í stjórn.
Markmið Bjargráðs er að
veita almenningi fræðslu um skyndihjálp,
með sérstakri áherslu á nemendur í grunn- og
framhaldsskólum.
Í vetur hafa Bjargráðsliðar haldið fjölmarga
fyrirlestra fyrir nemendur framhaldsskóla á
höfuðborgarsvæðinu og næsta nágrenni þar
sem lögð er áhersla á endurlífgun. Aldrei
hafa fleiri framhaldsskólar tekið á móti
okkur en haldnir voru að minnsta kosti 49
fyrirlestrar í tíu framhaldsskólum. Í ár voru
fyrsta árs læknanemar hvattir til þátttöku
í fyrirlestrum Bjargráðs í fyrsta sinn líkt og
annars árs nemar, sem hafa farið í fyrirlestra
á vegum Ástráðs. Fyrirlestrarnir eru byggðir á
efni frá Endurlífgunarráði Evrópu þannig að
kennsluefnið byggir á traustum grunni.
Í upphafi skólaárs kynntu eldri Bjargráðsliðar
starfið fyrir fyrsta árs nemum og kenndu
undirstöðuatriði í skyndihjálp. Einnig
fengum við aðstoð frá góðvinum okkar í
Björgunarsveitinni Ársæli og frá Kristínu
Sigurðardóttur lækni. Bítið á Bylgjunni tók á
móti Bergþóri Steini Jónssyni (einnig þekktur
sem Bráða-Beggi) stofnanda Bjargráðs og
fyrrverandi formanni ásamt undirritaðri þar
sem starfsemi Bjargráðs var kynnt og brýnt
fyrir mikilvægi kennslu á endurlífgun.
Á endurlífgunardeginum þann 16. október
hélt Bjargráður fræðslufund þar sem Karl
Andersen hjartalæknir ræddi við læknanema.
Sama dag tók Bjargráður þátt í „flashmob“ í
Kringlunni til að vekja athygli á endurlífgun
en viðburðurinn var skipulagður af
Endurlífgunarráði Íslands. Einnig var ætlunin
að halda opinn fyrirlestur um endurlífgun
fyrir alla háskólanema en vegna verkfalla féll
sá viðburður niður. Á Háskóladeginum þann
31. mars var Bjargráður með bás þar sem
Bjargráðsliðar kenndu gestum og gangandi
grunntökin í endurlífgun.
Til þess að fagna farsælu skólaári var haldið
„BráðaPubQuiz“ í Stúdentakjallaranum. Sá
viðburður heppnaðist vel og fjöldi fyrirtækja
styrkti okkur um vinninga. Að auki voru þeir
sem tekið höfðu þátt í flestum fyrirlestrum á
vegum Bjargráðs verðlaunaðir fyrir góð störf.
Ekki má gleyma spennandi BS verkefni Ívars
Elí Sveinssonar, varaformanns Bjargráðs.
Könnun var lögð fyrir framhaldsskólanema,
bæði fyrir og eftir fyrirlestur frá Bjargráði til
þess að athuga hvort kennsla Bjargráðs skilaði
árangri.
Bjargráður er ungt félag en ljóst er að miklu
hefur verið áorkað á þessum þremur árum. Þó
er margt sem má bæta og það er spennandi
að taka þátt í þróun slíks félags. Áhugi er
fyrir samstarfi við sambærileg félög erlendra
læknanema. Með því að kynnast starfi
annarra félaga verður vonandi hægt að bæta
starf Bjargráðs enn fremur. Á næstu árum er
einnig óskandi að hægt verði að heimsækja
framhaldsskóla á landsbyggðinni og fleiri
framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu.
Mikilvægt er að vekja upp frekari áhuga
almennings á skyndihjálp og breiða út
kunnáttu í grunnatriðum skyndihjálpar,
landsmönnum öllum til heilla.
Bjarg ráður
Steinunn Birna Sveinbjörnsdóttir
formaður Bjargráðs