Læknaneminn - 01.04.2016, Blaðsíða 65

Læknaneminn - 01.04.2016, Blaðsíða 65
Fr óð le ik ur 65 Heimildir 1. Judge DP, Dietz HC. Marfan’s syndrome. Lancet 2005;366(9501):1965–76. 2. Schaffer J V., Bolognia JL. The Melanocortin-1 Receptor. Arch Dermatol 2001;137(11). 3. Sulem P, Gudbjartsson DF, Stacey SN, et al. Genetic determinants of hair, eye and skin pigmentation in Europeans. Nat Genet 2007;39(12):1443–52. 4. Deloukas P, Kanoni S, Willenborg C, et al. Large-scale association analysis identifies new risk loci for coronary artery disease. Nat Genet 2013;45(1):25–33. 5. Horton JD, Cohen JC, Hobbs HH. Molecular biology of PCSK9: its role in LDL metabolism. Trends Biochem Sci 2007;32(2):71–7. Áhugaverðir tenglar og ítarefni Vefsíður • Arnar Pálsson. „Hvað felst í því að skrá erfðamengi mannsins og hvað hefur það í för með sér?“ Vísindavefurinn 18.08.2014. http:// visindavefur.is/svar.php?id=67876 • Genomes of Icelanders - Sérstök útgáfa Nature Genetics sem helguð var rannsóknum Íslenskrar erfðagreiningar og kortlagningu erfðamengis Íslendinga. http://www.nature. com/ng/focus/icelanders/index.html • Learn.Genetics - Gagnvirk kennslusíða um grunnatriði í erfðafræði á vegum Háskólans í Utah. http://learn.genetics.utah.edu/ Tímaritsgreinar • Dubé JB & Hegele RA. Genetics 100 for Cardiologists: Basics of Genome-Wide Association Studies. Canadian Journal of Cardiology 2013;29:10–17. Aðgengileg grein sem útskýrir meginþætti víðtækrar erfðamengisleitar. • Metzker ML. Sequencing technologies - the next generation. Nature Reviews Genetics 2010;11: 31–46. Næstu kynslóðar raðgreining fyrir lengra komna. galla í mikilvægu prótíni, þá er hún sennilega sjúkdómsvaldandi. Í fæstum tilfellum sem þessum yrði þó gripið beint til raðgreiningar alls erfðamengisins, en það er enn sem komið er afar kostnaðarsamt. Mögulega mætti byrja á því að skima fyrir völdum stökkbreytingum sem vitað er að geta valdið sjúkdóminum. Einnig mætti raðgreina aðeins valin svæði í erfðamenginu eða aðeins táknraðir gena, en það kostar aðeins brot af því sem raðgreining alls erfðamengisins kostar. Enn sem komið er, er raðgreining þó fremur lítið notuð í klínískri læknisfræði en notkun hennar mun vafalaust aukast á komandi árum. Stórum raðgreiningarverkefnum hefur verið komið á fót sem hafa það að markmiði að kortleggja erfðamengi heilla þjóða. Þar hefur Íslensk erfðagreining verið í broddi fylkingar. Kortlagning erfðamengis Íslendinga hefur veitt okkur einstakt innsæi í erfðaupplag heillar þjóðar sem á sér engin fordæmi. Sú kortlagning byggir á því að samþætta nákvæmar upplýsingar um skyldleika Íslendinga og arfgerðar- upplýsingar sem fengnar eru með heilraðgreiningu og örflögutækni, en vel á annað hundrað þúsund Íslendinga hafa verið arfgerðargreind með þessum hætti. Á grundvelli þessarar vinnu hefur fjöldi erfðabreytileika fundist sem tengist líkum á algengum og sjaldgæfum sjúkdómum. Sú þekking getur opnað nýjar leiðir til þess að greina og meðhöndla sjúkdóma, finna nýja áhættuþætti og mögulega fyrirbyggja sjúkdóma. Víða eru uppi stórhuga áform, til dæmis stefnir Genomics England að því að raðgreina eitt hundrað þúsund erfðamengja á Bretlandi fyrir árslok 2017, með það að markmiði að nýta upplýsingarnar í þágu heilbrigðisþjónustu. Framundan eru því spennandi tímar á sviði erfðavísinda og fróðlegt verður að fylgjast með þróun mála á allra næstu árum. Þakkir Bestu þakkir fær Guðmundur Þor- geirs son fyrir yfirlestur og gagn legar ábendingar. Ef í vafa, talið við og skoðið sjúklinginn („when in doubt, go see the patient“). Meðhöndlið sjúklinginn, ekki aðeins tölurnar (rannsóknaniðurstöður). Allar blæðingar hætta….um síðir! (Tilvitnun: gamall skurðlæknir á Landspítalanum). Forðist að nota sýklalyf við meðferð húðbólgu af völdum bláæðasjúkdóms (stasis dermatitis) á fótleggjum. Lögmál Sutton’s: Leitið þar sem fé er að finna („go where the money is“). Ef sökk er hærra en hemóglóbín, fáið ráðgjöf frá lyflæknum!! Meðhöndlið ekki einkennalausa bakteríumigu með sýklalyfjum. Er mjög algengt fyrirbæri, einkum hjá eldri konum. Klínískt nef Sigurðar Guðmundssonar Staphylococcus aureus veldur nær aldrei beinni þvagfærasýkingu. Ef S. aureus greinist í þvagi, leitið að djúpri sýkingu, svo sem blóðsýkingu, hjartaþelsbólgu eða beinsýkingu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.